HÚSASJÁ

Fífusel 35

06-0402 · 109 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
23 myndir

102 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1975

Byggingarár

4920 m²

Lóð

Garður

Svalir

Geymsla



155 dagar á sölu

sell

69.000.000 kr

675.147 kr/m²

Pétur Ásgeirsson löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX fasteignasölu kynnir: Virkilega falleg 102,2 fm íbúð á tveimur hæðum með einstöku útsýni á fjórðu hæð að Fífuseli 35. Einkar rúmgóðar svalir með svalalokun og útsýni til suðurs sem gefur íbúð aukið rými og nýtingu.

Framkvæmdir voru á húsi 2023. Skipt um alla glugga. Þak endurnýjað. Múr og klæðning á húsi yfirfarin. Múr og steypuviðgerðir á svölum, svalagólf máluð með epoxy málningu.

Hér getur þú gengið í gegnum eignina í 3D

// 3 Svefnherbergi.

// Glæsilegt útsýni.

// Svalalokun.

// Mikið endurnýjuð.

Lýsing eignar:

Neðri hæð:

Forstofa: Parket á gólfi og með fataskáp. Parketlögð rými íbúðar eru með nýlegu harðparketi með hljóðeinangrunardúk sérvöldum, endurnýjað 2019.

Eldhús:  Parket lagt á hægri hönd frá forstofu, Góður, rúmgóður eldhúskrókur með fallegu útsýni til suðurs og að nærumhverfi. Innrétting er með góðu efri skápa og neðri skápa/skúffuplássi.

Gott borðpláss, borðplata í eldhúsi endurnýjuð 2021. Innangengt á tvo vegu að eldhúsi frá forstofugangi og stofu og að útgengi svala.

Stofa/borðstofa: Samliggjandi parketlagt rými með útgengi að suðursvölum. Svalir eru yfirbyggðar og með svalalokun ísett 2016. Hátt er til lofts í stofu sem gefur eign skemmtilegan karakter og sjarma.

Hjónaherbergi:  Parketlagt og með fataskáp.

Baðherbergi: Flísalagt gólf, innangengt í flísalagða sturtu, salerni og baðinnrétting með skúffum og handlaug ásamt spegli þar fyrir ofan. Tenging er fyrir þvottavél á baðherbergi.

Efri hæð:

Gengið er upp hringstiga á efri hæð.

Þar eru tvö svefnherbergi parketlögð og að hluta undir súð, annað með skáp.

Möguleiki er á að stækka svefnherbergi er liggur að hluta yfir stofu þar sem lofthæð er mikil þar.

Sér geymsla ásamt sameiginlegri hjóla og vagnageymslu í kjallara.

Sameiginleg lóð og bílastæði.

Einkar sjarmerandi íbúð með karakter og með einstöku útsýni til suðurs.

Ofnar í íbúð endurnýjaðir 2020.

Parket endurnýjað 2019.

Svalir múrviðgerðar og málaðar í hólf og gólf. Epoxy borið gólf 2023. Svalalokun sett upp 2016.

Baðherbergi endurnýjað ca. 2016-2017.

2023 Gluggar í húsi endurnýjaðir.

2023 Þak yfirfarið og eftirlit haft með þeim framkvæmdum.

Það sem var endurnýjað: Timburverk yfirfarið, nýr öndunardúkur settur á þak, nýtt þakjárn lagt á tvöfalda lektugrind.

2023 Klæðning á húsi yfirfarin og lagfærð ásamt múrviðgerðum.

2024 Frárennslislagnir myndaðar og hreinsaðar.

Efla sá um eftirlit með framkvæmdum sem stóðu frá 2022-2023.

Nánari upplýsingar gefur Pétur Ásgeirsson  löggiltur fasteignasali í síma 893-6513 / petur@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.

Kort af Fífusel 35

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23