HÚSASJÁ

Engjasel 35

04-0102 · 109 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
29 myndir

114 m²

Stærð

3

Herbergi

4

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1974

Byggingarár

4024 m²

Lóð

Garður

Geymsla

Þvottahús



36 dagar á sölu

sell

69.000.000 kr

604.733 kr/m²

Ragnar Guðmundsson S: 844-6516 löggiltur fasteignasali hjá TORG fasteignasölu kynnir: Rúmgóð og vel skipulögð 5 herbergja fjölskylduíbúð að Engjaseli 12 í Seljahverfinu. Eignin er skráð 114,1 fm. og skiptist í anddyri, hol/gang, eldhús, gott alrými sem rúmar bæði stofu og borðstofu, 3-4 svefnherbergi (fyrrum eigendur hagnýtu borðstofuna sem svefnherbergi), baðherbergi með þvottaaðstöðu og sér geymslu innan sameignar. Falleg fjölskyldueign á vinsælum stað í Seljahverfinu. Stór garður er bak við húsið. Stutt er í leik- og grunnskóla, og alla helstu þjónustu og verslanir. Allar nánari upplýsingar veitir Ragnar Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma: 844-6516 eða ragnar@fstorg.is

Nánari lýsing:

Anddyri: Komið er inn í harðparketlagt anddyri með stórum innbyggðum fataskápum.

Hol/gangur: Innan af anddyri er parketlagt hol eða svefnherbergisgangur.

Hjónaherbergi: Hjónaherbergið er búið háum og rúmgóðum fimmföldum fataskápum og parketi á gólfi.

Svefnherbergi: Að undanskildu hjónaherbergi eru 2-3 parketlögð svefnherbergi. Fyrri eigendur hagnýttu borðstofuna sem svefnherbergi og auðvelt er að setja upp hurð.

Eldhús: Eldhúsið er búið ljósri innréttingu með neðri- og efriskápum, grárri borðplötu, eldavél og stæði fyrir uppþvottavél. Gluggi með opnanlegu fagi og parket á gólfi.

Stofa: Stofan er mjög rúmgóð með parketi á gólfi.

Borðstofa: Rúmgóð borðstofan með parketi á gólfi. Frá borðstofu er útgengt út á svalir. Fyrrum eigendur hagnýttu borðstofuna sem barnaherbergi og auðvelt er að setja upp hurð.

Baðherbergi: Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf. Útbúið baðkari með sturtuaðstöðu, salerni, endurnýjaðri innréttingu með handlaug og neðriskápum. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Geymsla: Innan sameignar er góð sérgeymsla. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er innan sameignar.

Stutt er í leik- og grunnskóla, útivist og alla helstu þjónustu og verslanir.

Allar nánari upplýsingar veitir Ragnar Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma: 844-6516 eða ragnar@fstorg.is

Fáðu frítt söluverðmat fyrir eignina þína hér.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign (Opinber gjöld geta breyst):

1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma

í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.

Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.

Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir

og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Kort af Engjasel 35

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu