HÚSASJÁ

Engjasel 85

08-0302 · 109 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
23 myndir

114 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1978

Byggingarár

5060 m²

Lóð

Garður

Svalir

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



19 dagar á sölu

sell

68.900.000 kr

603.327 kr/m²

RE/MAX og Oddur fasteignasali kynna í einkasölu:

Vel skipulögð og björt þriggja herbergja íbúð í Engjaseli 85. Íbúðin er á þriðju hæð og er samtals 114,2fm þar af stæði í bílageymslu 24,1fm. Eignin skiptist í tvö svefnherbergi, stofu/borðstofu, baðherbergi og eldhús. Geymsla í sameign er ekki í skráðum fermetrum.

Allar nánari upplýsingar veitir Oddur í síma 782-9282 eða á oddur@remax.is

Smelltu hér til að skoða eignina í 3-D

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent beint af vef remax.is

Nánari lýsing:

Anddyri: í opnu rými með parketi á gólfi fataskáp.

Eldhús: nýleg hvít háglans innrétting með eikar borðplötu, gott borðpláss, parket á gólfi.

Stofa/borðstofa: eru í sameiginlegu opnu rými með parketi á gólfi og útgengi á svalir sem snúa í suð-austur.

Hjónaherbergi: er rúmgott með parket á gólfi og stórum fataskáp.

Svefnherbergi: parket á gólfi.

Baðherbergi: er nýlega uppgert, flísar á gólfi, walk in sturta. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Íbúðin er talsvert endurnýjuð, nýlegar innihurðar, eldhús og baðherbergi, skipt um teppi í stigagangi og hann málaður 2021. Húsið var klætt að hluta síðastliðið haust. Geymsla, þvottahús og hjólageymsla í sameign.

Allar nánari upplýsingar veitir Oddur í síma 782-9282 eða á oddur@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.

2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.

3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.

4. Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.

5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk

Kort af Engjasel 85

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð