HÚSASJÁ

Brekkusel 29

06-0101 · 109 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
49 myndir

251 m²

Stærð

6

Herbergi

7

Svefnherbergi

3

Baðherbergi

1980

Byggingarár

3321 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Bílskúr

Þvottahús



365 dagar á sölu

sell

128.900.000 kr

513.546 kr/m²

Betri Stofan fasteignasala Borgartúni 30 kynnir nýtt í einkasölu. Fallegt og vel skipulagt endaraðhús á þremur hæðum ásamt bílskúr, sjö svefnherbergi / í dag sér íbúð á jarðhæð í útleigu. Frábært útsýni yfir borgina. Eignin telur:

Miðhæð, anddyri, forstofuherbergi, stórt og bjart alrými með frábæru útsýni, fallegt eldhús, snyrtingu, sér þvottahús og svalir.

Efri hæð, gott hol, þrjú svefnherbergi og glæsilegt baðherbergi.

Neðri hæð, í dag er hæðin nýtt til útleigu, Þrjú svefnherbergi, alrými/eldhús, anddyri og baðherbergi - sér inngangur er á hæðin en einnig er inngengt frá miðhæð.

Nánari lýsing:

Komið er inn í anddyri, innaf anddyri er ágætt forstofuherbergi. Stofa - borðstofa mynda saman stórt og bjart parket alrými með parketi á gólfi - útgengt er á fínar svalir, frábært útsýni er af hæðinni. Eldhúsið er með fallegri innréttingu og góð skápaplássi. Á hæðinni er einnig flísalögð gestasnyrting og sér þvottahús.

Á efri hæðinni er komið upp í parketlagt fínt hol - hægt að nýta sem sjónvarpshol. Svefnherbergin á hæðinni eru þrjú með parketi á gólfi, úr hjónaherbergi er útgengt á svalir.  Baðherbergi á hæðinni er flísalagt og endurnýjað með hvítri innréttingu, vegghengdu salerni og einhalla sturtu með gleri.

Neðri hæðin er í dag nýtt til útleigu, innan gegnt er af miðhæðinni en einnig  sérinngangur og útgengt einnig á baklóð. Hæðin telur opið alrými með fínni eldhúsinnréttingu, parket og flísar á gólfi, ásamt þremur herbergjum. Baðherbergi á hæðinni er flísalagt og þvottahús.

Bílskúrinn er með rafmagni, opnara og vatni - þar er einnig fínt geymsluloft.

Lóðin er falleg, baklóð er vel afgirt með stórum veröndum og grasflöt.

Þetta er vel skipulagt endaraðhús með mikla möguleika og ótrúlega fallegu útsýni.

Skipti á 3-4 herb íbúð skoðuð - sér inngangur stór kostur.

Allar nánari upplýsingar veitir Atli S. Sigvarðsson lgf. í síma 899-1178 eða atli@betristofan.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:

1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Kort af Brekkusel 29

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu