HÚSASJÁ

Grjótasel 6

02-0101 · 109 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
25 myndir

210 m²

Stærð

7

Herbergi

5

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1978

Byggingarár

694 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



10 dagar á sölu

sell

139.000.000 kr

660.961 kr/m²

Katla, löggiltur fasteignasali, og Háborg fasteignasala kynna:

Rúmgott og einstaklega fallegt hús á tveimur hæðum með tvöföldum bílskúr við Grjótasel 6 í neðra Breiðholti. Húsið er keðjuhús og teiknað af Kjartani Sveinssyni.

Um er að ræða vel skipulagða fjölskyldueign í grónu hverfi. Neðri hæð er með fjórum svefnherbergjum og baðherbergi, en efri hæð myndar bjart og rúmgott alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi. Arinn er miðsvæðis í alrýminu og útgengi er á suðursvalir. Á efri hæð er einnig herbergi sem nýtt er sem sjónvarpsherbergi í dag og snyrting.

Eigninni fylgir sér lóð með fallegu útisvæði. Garðurinn er á tveimur svæðum sitt hvorum megin við húsið; fyrir framan húsið er sólríkur pallur/útisvæði með fallegum gróðri í beðum og hellulögð stétt tengir garðsvæði á snyrtilegan hátt. Við hlið hússins er afmarkaður garður með grindverki sem myndar notalegt útisvæði með runnum og fjölæringum sem veita gróður og næði yfir sumartímann. Þá er rúmgott bílaplan með snjóbræðslu og stæði fyrir nokkra bíla.

Eignin hefur fengið gott viðhald og upplýsingablað seljanda er aðgengilegt hjá fasteignasala.

Skráð stærð samkvæmt Þjóðskrá Íslands: Húsið er skráð 210,3 fm, þar af er bílskúr 46,6 fm.

Allar nánari upplýsingar veitir:

Katla Hanna Steed, löggiltur fasteignasali – 822 1661 – katla@haborg.is

Nánari lýsing

Neðri hæð

Komið er inn í anddyri með fataskápum og flísum á gólfi. Þaðan er gengið í hol sem tengir öll rými hæðarinnar.

Á neðri hæð eru fjögur svefnherbergi:Hjónaherbergi með sér fataherbergi og parketi á gólfi.Barnaherbergi I með fataskáp og parketi á gólfi.Barnaherbergi II með fataskáp og parketi á gólfi.Svefnherbergi IV er staðsett við bílskúr og er rúmgott rými sem nýtist vel sem unglingaherbergi, gestaherbergi eða skrifstofa.Baðherbergi er rúmgott og flísalagt, með sturtu og baðkari.

Bílskúr / þvottahús / geymsla

Inngangur er úr húsinu inn í tvöfaldan bílskúr með rafmagnshurðaopnara. Þvottahús er staðsett inni í bílskúr og geymsla er einnig til staðar.

Efri hæð

Stofa, borðstofa og eldhús mynda saman samfelld alrými á efri hæð. Eldhús er með steini á borðplötum, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél, og gengið er í gegnum eldhúsið úr tveimur áttum sem skapar gott flæði. Útgengi er úr stofu á svalir sem snúa til suðurs. Arinn er staðsettur miðsvæðis í alrýminu og setur hlýjan svip á rýmið.

Á efri hæð er einnig herbergi sem er nýtt sem sjónvarpsherbergi í dag og snyrting.

Lóð og bílastæði

Sér lóð með sólríkum palli, bílastæði fyrir nokkra bíla og snjóbræðsla í bílaplani.

Viðhald og endurbætur

Eignin hefur fengið gott viðhald. Framkvæmdar hafa verið múrviðgerðir á útveggjum hússins. Húsið verður málað að utan í vor og mun seljandi sjá um að ljúka þeirri framkvæmd. Upplýsingablað seljanda með nánari upplýsingum um viðhald og framkvæmdir er aðgengilegt hjá fasteignasala.

Staðsetning

Grjótasel er í grónu og fjölskylduvænu hverfi í neðra Breiðholti. Stutt er í skóla- og leikskólaþjónustu, verslanir og aðra nærþjónustu. Einnig er stutt í íþróttaaðstöðu og starfsemi Íþróttafélagsins ÍR.

Kort af Grjótasel 6

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð