Giljasel 7
01-0001 · 109 Reykjavík



5 dagar á sölu
57.500.000 kr
666.280 kr/m²
RE/MAX, ásamt Garðari Hólm lgf. og Guðlaugu Jónu lgf. kynna: 3ja herbergja íbúð með sérinngang við Giljasel 7, Reykjavík. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er íbúðin skráð 86,3 fm. Eigninni fylgir geymsla sem er ekki inn í fermetratölu eignarinnar ca. 30 fm. Húsið er nýmálað að utan og aðkoman að húsinu er mjög snyrtileg. Stór verönd með útsýni er við inngang.
Eignin er á á frábærum stað þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.
Nánari lýsing:
Forstofa með fatahengi og harðparketi á gólfi.
Eldhús er með hvítri fallegri innréttingu og viðarborðplötu. Tengi fyrir uppþvottavél og ísskáp. Rúmgott rými þar sem rúmast vel fyrir eldhúsborði. Harðparket á gófli.
Baðherbergi er með handlaug, salerni og flísalögðum sturtuklefa með hengi. Flísar á gólfi og veggjum.
Stofa er rúmgóð og þaðan er gengið út á yfirbyggðan skála sem er ekki inn í fermetra tölu íbúðarinnar. Harðparket á gólfi.
Svefnherbergin 2 eru rúmgóð með harðparketi á gólfi.
Þvottaherbergi er með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Borðplata og efri skápar.
Sérgeymsla er stór og gengið í hana af verönd, hún er ekki inn í fermetratölu íbúðarinnar.
Garður er allur stór timburverönd sem er sérafnotaréttur íbúðar.
Nánari upplýsingar um eignina veita:
Garðar Hólm lgf. í gegnum gardar@remax.is eða s. 899-8811
Guðlaug Jóna lgf. í gegnum gulla@remax.is eða s. 661-2363

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna

















