HÚSASJÁ

Hæðarsel 1

01-0101 · 109 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
48 myndir

241 m²

Stærð

6

Herbergi

5

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1982

Byggingarár

752 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur



22 dagar á sölu

sell

165.000.000 kr

683.796 kr/m²

LANDMARK kynnir:  Virkilega fallegt og vel skipulagt 241,3 fm einbýlishús á tveimur hæðum á skemmtilegum og grónum stað í Seljahverfi Reykjavíkur.  Íbúðarrými 211,3 fm og bílskúr 30 fm auk óskráðs rýmis.  4-5 svefnherbergi | 2-3 stofur  | 2 baðherbergi.  Stutt í skóla, leikskóla og íþróttaaðstöðu ÍR í Seljaskóla. Innfelld lýsing. Gólfhiti í báðum baðherbergjum, þvottahúsi, forstofu og hluta eldhúss.

Endurbætur undanfarinna ára:  Ofnar á neðri hæð endurnýjaðir að hluta, stigar málaðir, parket endurnýjað á efri hæð, loft klædd á efri hæð og lýsing endurnýjuð.  Einnig var suðurhluti þaks málaður og pallur austan / norðanmegin við húsið reistur ásamt útieldhúsi, sólskála og útiskúr.

Forstofa er flísalögð með fataskáp

Hol er inn af forstofu með flísum á gólfi og stiga upp á efri hæð.

Eldhúsið er flísalagt með fallegri innrétting með eldhúseyju og steini í borðum og Span-helluborði.

Borðstofa er inn af eldhúsi með flísum á gólfi og þaðan er útgengt út á verönd vestan megin við húsið.

Baðherbergi með fallegri innréttingu og sturtu.

Setustofa er með parketi á gólfi og arni með aukinni lofthæð.  Þaðan er útgengt út á verönd sem snýr til austurs.

Sjónvarpsstofa (hjónaherbergi á teikningu) er með parketi á gólfi og innbyggðri innréttingu.  Þaðan er einnig útgengt út á verönd.

Komið er upp í parketlagt hol á efri hæð.

Baðherbergið er flísalagt og mjög rúmgott með baðkari, sturtuklefa og fallegri innréttingu ásamt handklæðaofni.

Svefnherbergin eru fjögur og eru mjög góðir fataskápar í stærsta herberginu.  Þaðan er einnig útgengt út á austursvalir.

Þvottahúsið er með innréttingu, handklæðaofni og opnanlegum glugga.

Úr holi á efri hæð er stigi upp í risloft sem er um 11 fm að gólffleti og getur nýst á marga vegu.

Gangur úr holi inn í bílskúr er með skápum.  Bílskúrinn er 30 fm og er tvískiptur í dag, inn af honum er köld rúmgóð geymsla með hurð út í lóð.

Garðurinn er einkar snyrtilegur og vel búinn með útieldhúsi, sólstofu, útiarni, steyptum heitum potti og veröndum báðum megin hússins.  Tvö bílastæði á lóð

Upplýsingar veitir Sigurður Samúelsson Lgf í síma 896-2312 eða ss@landmark.is

--------------------------------------------------------------Skoðunar- og aðgæsluskylda:

Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:

Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:

1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.

3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.

3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.

3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK

Pantaðu frítt söluverðmat

Kort af Hæðarsel 1

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36Mynd 37Mynd 38Mynd 39Mynd 40Mynd 41Mynd 42Mynd 43Mynd 44Mynd 45Mynd 46Mynd 47Mynd 48