Vatnsveituv. Fákur
16-0101 · 110 Reykjavík



218 dagar á sölu
75.000.000 kr
275.735 kr/m²
Garðatorg eignamiðlun. Sölumaður Sigurður s. 8983708
Hesthús með íbúð – tilvalið fyrir atvinnufólk í hestamennsku.
Til leigu (eða sölu) er 272 fm einstaklega vel útbúið og vel skipulagt hesthús með fullbúinni íbúð, staðsett á einum eftirsóttasta stað á félagssvæði Fáks í Víðidal. Eignin hentar sérstaklega vel fyrir tamningamenn, þjálfara, kennara og annað atvinnufólk í hestamennsku með búsetu á staðnum.
Hesthúsið rúmar samkvæmt eldri reglugerð allt að 54 hestapláss, en í dag eru þar um 30 rúmgóðar lúxusstíur, sem eru mun stærri en kröfur reglugerðar um stíustærðir fyrir einn hest. Fimm viðrunargerði fylgja húsinu.
Að innan er hesthúsið bjart og vel loftræst. Góður steyptur fóðurgangur, ryðfrí milligerði (að hluta steypt). Stíurnar eru safnstíur og vélmokaðar.
Skipulag hesthúss: Fóðurgangur með 22 stíum sitthvoru megin. Innri gangur með 4 graðhestastíum, einni 2ja hesta stíu og stórri folaldastíu. Hlöðurými. Reiðtygjageymsla með 12 læstum skápum. Aðstaða til þvotta og járninga. Salernisaðstaða
Á efri hæð hússins er rúmgóð íbúð björt íbúð. Íbúðin skiptist í stórt og bjart alrými, eldhús, borðstofu og stofu, baðherbergi með sturtuklefa, svefnherbergi með glugga, annað herbergi (gluggalaust) Eignin býður upp á fjölmarga möguleika t.d að byggja reiðskemmu yfir hluta af gerði, stækka eða endurskipuleggja íbúðarrými og hugmyndir hafa verið uppi um nýjan eignaskiptasamning, þar sem hver stía fengi sér fastanúmer.
Nánari upplýsingar veitir:
Sigurður Tyrfingsson, löggiltur fasteignasali og húsasmíðameistari
898-3708
sigurdur@gardatorg.is
Frábært hesthús á besta stað á félagsvæði Fáks.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.000 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Garðatorg Eignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því Garðatorg eignamiðlun skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna

















