Vatnsveituv. Fákur
09-0102 · 110 Reykjavík



9 dagar á sölu
42.500.000 kr
326.923 kr/m²
Hraunhamar fasteignasala kynnir: Frábært hesthús ! Um er að ræða 50% hlut í einu af betri húsum á svæðinu, er á frábærum stað í Víðidalnum stutt frá félagsaðstöðu/heimili Fáks Rvk. Hitaveita/ofnar.
Eignarhluturinn er skýr og afmarkaður í húsinu. Um er að ræða 50% hlut í öllu húsinu, og er hann vinstrameginn í húsinu þegar komið er inn í það. Fimm 2ja hesta stíur og tvær ein hesta stíur, milligerði úr eik og ryðfríu efni, steyptir frontar með eikarhurðum/ ryðfrýtt efni. Rúmgóð sér hlaða, sér hnakka/reyðtygja geymsla, rúmgóð kaffistofa á efri hæð auk snyrting, gengið út á rúmgóðar s-v svalir frá kaffistofu.
Sameignilegt gerði með hinum eiganda hússins. Sameiginleg taðþró. Góð aðkoma og næg bílastæði.
Húsnæði er skráð 50% hluturinn er skráður 90 fm hjá þjóðskrá, en inn í hann vantar m.a. hlöðuna, kafistofu, snyrtingu, og reiðtygjageymslu. Eignin er því mun stærri en uppgefnir fermetrar segja til um, lætur nærri að vera um 130 fm, þ.e. 50% hluturinn.
Þetta er áhugarvert hesthús á þessum frábæra stað til að skoða frekar.
Nánari uppl gefur Helgi Jón Harðarson sölustj. s. 893-2233 helgi@hraunhamar.is og
Glódís Helgadóttir lgf. s. 659-0510 glodis@hraunhamar.is
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna























