Vatnsveituv. Fákur
04-0101 · 110 Reykjavík



457 dagar á sölu
7.900.000 kr
32.510 kr/m²
Háborg fasteignasala kynnir: Tvær hesthúsastíur – 12,5% eignarhlutur í vönduðu hesthúsi í Faxabóli
Um er að ræða tvær vandaðar og vel við haldnar hesthúsastíur nr. 1-4 í einstaklega skipulögðu hesthúsi á frábærum stað í Faxabóli – beint á móti Fáksheimilinu, við hlið stórs tamningagerðis. Eignarhluturinn nemur 12,5% samkvæmt fasteignaskráningu og samsvarar tveimur tveggja hesta stíum. Mögulegt er að kaupa aðeins eina stíu (6,25%). Birt stærð fasteignarinnar er 160 fm ásamt 83 fm áfastri hlöðu, samtals 243 fm.
Húsið er í mjög góðu ástandi, með snyrtilegri aðkomu og stóru afgirtu gerði. Sameignin er snyrtileg og vel við haldið. Góð umgengni og samstaða meðal eigenda.
Aðstaða í sameign:Glæsileg kaffistofa með mikilli lofthæð og suðursvölumÞvottaaðstaðaJárningaaðstaðaHnakkageymsla og hlaðaFjögur búningsherbergiSnyrting og geymslaAðrar upplýsingar:Morgungjöf er aðkeypt og kvöldgjafir í vöktumHver stía er 6,25% af heildareign – hægt að kaupa aðskiliðKaupandi þarf að vera félagsmaður í Hestamannafélaginu FákiFrábær staðsetning fyrir hestafólk sem vill tryggja sér framtíðaraðstöðu í einu eftirsóttasta hesthúsahverfi landsins.
Nánari upplýsingar veitir Katla Hanna Steed, löggiltur fasteignasali í síma 822 1661 eða katla@haborg.is

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir
























