HÚSASJÁ

Unufell 42

10-0101 · 111 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
30 myndir

159 m²

Stærð

4

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1973

Byggingarár

4617 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur



22 dagar á sölu

sell

104.000.000 kr

653.266 kr/m²

Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega fallegt og vel skipulagt endaraðhús á einni hæð með bílskúr við Unufell í Reykjavík. Eignin sem hefur hlotið gott viðhald er skráð 159,2 fermetrar og þar af er bílskúr 22,2 fermetrar. Falleg skjólsæl baklóð er til suður með afgirtri viðaverönd og garði. Möguleiki að tengja heitan pott.

Eignin hefur verið mikið endurnýjuð hið innra á sl. árum, þar á meðal eldhúsinnrétting og tæki, gólfefni, baðherbergi og innihurðirhurðir.

Húsið skiptist í forstofu, þvottaherbergi, sjónvarpshol, eldhús, gang, þrjú barnaherbergi, hjónaherbergi, baðherbergi, stofu og borðstofu með útgengi á baklóð.

Lýsing:

Forstofa, flísalögð með fataskáp.

Þvottaherbergi, flísalagt með tengi fyrir vélum, heitu og köldu vatni, hillum og vinnuborði. Aðgengi er þar að stóru geymslulofti yfir mest allri hæðinni.

Hol, parketlagt, rúmgott með aukinni lofthæð og þakglugga.

Eldhús, parketlagt, rúmgott, nýleg Kvik innrétting, tveir ofnar í vinnuhæð, innbyggður ísskápur, innbyggð uppþvottavél, góður búrskápur, stór eyja með spanhelluborði og borðaðstöðu.

Borðstofa / stofa, í einu rými með aukinni lofthæð og útgengi á fallega afgirta viðarverönd og þaðan í garð. Möguleiki er að tengja heitan pott.

Barnaherbergi I, parketlagt og með fataskápum.

Barnaherbergi II, parketlagt og með fataskápum.

Gangur, parketlagður og með fataskápum á heilum vegg.

Baðherbergi, nýlega endurnýjað, flísalagt gólf og veggir, upphengt wc, innrétting, skápar, handklæðaofn, baðkar og flísalögð sturta.

Hjónaherbergi, rúmgott, parketlagt með fataskápum og útgengi á verönd.

Barnaherbergi lll, parketlagt

Bílskúr er með rafmagni, hita og rennandi vatni. Rafmagnsopnari er á bílskúrshurð.

Húsið að utan virðist vera í góðu ástandi og þakjárn er endurnýjað. Fallegt aðgengi er að eignin með hellulögðum stéttum með snjóbræðslu og skjólsælli baklóð til suðurs með viðarverönd, garði og fallegum trjágróðri.

Staðsetning eignarinnar er góð á grónum og rólegum stað við Unufell í Breiðholti þaðan sem stutt er í leikskóla, skóla, leiksvæði, verslanir, þjónustu o.fl.

Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Er væntanlegum kaupendum því bent á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 fyrir hvert skjal.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðum lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Kort af Unufell 42

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30