HÚSASJÁ

Kötlufell 3

02-0402 · 111 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
29 myndir

64 m²

Stærð

2

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1974

Byggingarár

5291 m²

Lóð

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



18 dagar á sölu

sell

49.500.000 kr

771.028 kr/m²

Trausti fasteignasala og Hallgrímur Hólmsteinsson, löggiltur fasteignsali kynna í einkasölu bjarta og fallega 2ja herbergja íbúð á 4. hæð við Kötlufell 3 í Reykjavík. Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla, matvörubúð og sundlaug. EIGNIN ER LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING.

Eignin er skráð 64,2 fm hjá HMS, þar af er 6,2 fm geymsla á jarðhæð, yfirbyggðar svalir eru ekki inni í skráðum fermetrum. Eigninni fylgir hlutdeild í sameign, sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu og þvottaaðstaða.

Nánari lýsing:

Forstofa með fatahengi, dúkur á gólfi.

Eldhús með hvítri innréttingu, bakaraofn, helluborði og gufugleypi. Tengi fyrir uppþvottavél og dúkur á gólfi.

Stofa og borðstofa í samliggjandi opnu rými, dúkur á gólfi og yfirbyggðar svalir hluti af stofunni.

Svefnherbergi, rúmgott með góðum fataskápum, dúkur á gólfi.

Baðherbergi með hvít innréttingu, baðkar með sturtuaðstöðu, tengi fyrir þvottavél.

Sérgeymsla á jarðhæð (6,2 fm).

Hér er góð eigna á ferðinni sem hentar vel sem fyrstu kaup. Sjón er sögu ríkari, allar nánari upplýsingar veitir Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali í síma 896-6020 eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is.Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Kort af Kötlufell 3

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29
Kötlufell 3, 02-0402 | Húsasjá