Þórufell 16
08-0403 · 111 Reykjavík



2 dagar á sölu
49.000.000 kr
614.035 kr/m²
Íbúðaeignir og Halldór Már, löggiltur fasteignasali (halldor@ibudaeignir.is - sími: 898-5599) kynna til sölu 3ja herbergja íbúð við Þórufell 16, Reykjavík. Eignin er skráð 79,8m þar af 6,5 fm geymsla. Eignin er rúmgóð með góðu flæði milli rýma og telur 2 svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, stofu og svalir. Með íbúðinni fylgir sér geymsla á jarðhæð og sameiginlegt þvottahús.
Allar nánari upplýsingar veita á og utan opnunartíma:
Halldór Már Sverrisson, löggiltur fasteignasali í síma 898-5599 eða halldor@ibudaeignir.is
Nánari lýsing:
Forstofa með skápaeiningu í anddyri.
Svefnherbergin 2 eru rúmgóð með skápum, opnanlegum gluggum og parketi á gólfum.
Eldhús er rúmgott með tengi fyrir uppþvottavél og ísskáp, dúkur á gólfi.
Baðherbergi er með baðkari og sturtu, dúkur á gólfi og veggjum.
Stofa gott og bjart rými.
Svalir rúmgóðar sem snúa til suðurs, útgengt úr stofu.
Þvottahús er sameignlegt á jarðhæð.
Geymsla er 6,5 fm á jarðhæð.
Endurbætur: Eignin er öll meira og minna upprunaleg og þarfnast mikilla endurbóta en býr yfir miklum möguleikum. Þak er endurnýjað og Gluggar eru að hluta til endurnýjaðir.
Samantekt: Um ræðir og vel staðsetta eign með ágætist útsýni sem býr yfir umtalsverðum framtíðarmöguleikum á þessum frábæra stað í Reykjarvík þar sem stutt er í allar helstu verslanir og þjónustu, svo sem leik- og grunnskóla, verslun og leiksvæði.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna










