Asparfell 6
06-0304 · 111 Reykjavík



4 dagar á sölu
45.900.000 kr
867.675 kr/m²
Fasteignasalan Garður
Virkilega falleg og björt 52,9 fm 2ja herbergja íbúð á þriðju hæð í snyrtilegri lyftublokk. Íbúðin hefur nýlega verið endurnýjuð að einhverjum hluta að innan. Svo sem skipt um gólfefni á alrými og svefnherbergi. Eldhús endurnýjað að mestu leiti. Skipt um raflagnaefni (tengla og rofa). Íbúð sem getur verið laus við kaupsamning.
Viðhaldi hússins hefur verið vel viðhaldið m.a. var farið í stórar framkvæmdir á gluggum, múr og þaki árið 2022 til 2023. Einnig var nýlega komið fyrir djúpgámum á bílastæði.
Stutt er í alla almenna þjónustu hvort sem er í göngufæri eða með strætisvagnasamgöngum, leik- og grunnskólar í göngufæri ásamt líkamsrækt, sundlaug, bókasafni og íþróttaiðkun
Forstofa með fatskáp.
Stofan er mjög björt og þaðan er útgengt á rúmgóðar suðursvalir.
Eldhús er við inngang íbúðar. Skipt var um hluta af innréttingu og sett ný borðplata ásamt eldhústækjum. Stofan er opin að hluta til inn að stofu.
Svefnherbergið er rúmgott með góðum glugga sem nýlega var skipt um. Fataskápur er í herberginu.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og baðkar með sturtuaðstöðu.
Þvottahús er í sameign á hæðinni.
Geymsla er í sameign í kjallara.
Hjóla- og vagnageymsla í sameign.
Saga húsfélagsins:
Farið var í framkvæmdir 2022-2023 fyrir ca. 330.000.000 kr á húsinu 2-12.
-Ca. 300.000.000 kr. framkvæmdir við glugga, múr og þak, auk málunar.
-Ca. 25.000.000 kr. framkvæmdir við djúpgáma.
-Rest fór í að gera upp íbúðir sem húsfélagið á.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna










