HÚSASJÁ

Keilufell 4

01-0101 · 111 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
64 myndir

253 m²

Stærð

4

Herbergi

5

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1973

Byggingarár

720 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Þvottahús

Auka íbúð



18 dagar á sölu

sell

127.500.000 kr

503.157 kr/m²

LIND fasteignasali og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir 253,4 m2 fallegt timbur einbýlishús á tveimur hæðum með steyptum kjallara með aukaíbúð á mjög fallegum útsýnisstað við Keilufell 4 í Breiðholti.  Íbúðarfermetrar eru samtals 224 m2 auk 28,8 m2 bílskúrs .Frábær staðsetning í rólegu og fjölskylduvænu hverfi. Húsið stendur á 720 fm lóð.

Helstu endurbætur

* 2017 eldhús og tæki endurnýjuð

* 2020 gluggar endurnýjaðir á austur hlið auk klæðningar á efstu hæðinni á austur hlið.

* 2024 baðherbergi endurnýjað á neðri hæð

* 2024 þakjárn endurnýjað ásamt timbri og pappa sem þurfti

Aðalíbúð:

Forstofa með fatahengi, flísar á gólfi.

Svefnherbergi er hægra megin við inngang með flísalögðu gólfi.

Baðherbergi endurnýjað 2024 með flísalögðu gólfi ( hiti í gólfi ) , hvítar innréttingar, upphengt salerni og sturtuklefi.

Þvottahús með dúk á gólfi, handklæðaofn, hillur.( gluggi fylgir með í kaupunum.

Gangur með flísum á gólfi tengir saman herbergi eldhús og stofur á neðri hæð.

Eldhúsið er opið yfir í stofu með endurnýjaðri innréttingu og tækjum frá 2017, innréttingin er með efri og neðri skápum, eyja með span helluborði, gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp í innréttingu, tveir ofnar í vinnuhæð. útgengt út á svalir til vesturs með miklu útsýni.

Stofa og borðastofa er samliggjandi með flísum á gólfi.

Ris hæð: Stigi upp með teppalögðu gólfi

Hol með teppalögðu gólfi og fataskáp.( gluggi fylgir )

Hjónaherbergi með parketi á gólfi og fataskáp

Barnaherbergin eru tvö með parketi á gólfi og fataskápum.

Baðherbergi með lakkaðri innrétting með spegli fyrir ofan með led lýsingu, sturtuklefa, upphengdu salerni, epoxi málning á gólfi.

Geymslurými undir súð.

Kjallari- 3.herbergja ibúð með sérinngangi í kjallara

Anddyri flísalagt með fatahengi .

Baðherbergi með hvítri innréttingu. Hitageymsla með sturtu, handklæðaofn, flísar á gólfi, t.f þvottavél..

Gangur með parketi á gólfi tengir saman herbergi eldhús og stofur.

Tvö svefnherbergi með parketi á gólfi.

Eldhús sem er opið yfir í stofu, L-laga innrétting, borðkrókur.

Stofa með parketi á gólfi og mjög bjartar, útgengt er út á lokaða verönd.

Bílskúr er kaldur og þarfnast viðhalds.  En gert ráð fyrir hita og rafmagni.  Þakið á honum lekur.

Bílaplanið er steypt.

Þetta er falleg eign sem kemur verulega á óvart varðandi pláss og stærð, á góðum stað mjög nálægt Elliðarádalnum þar sem stutt er í fallegar gönguleiðir og yndislega náttúru. Allar upplýsingar um eignina vetir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is

Kort af Keilufell 4

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð