HÚSASJÁ

Vesturberg 4

02-0402 · 111 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
31 myndir

106 m²

Stærð

3

Herbergi

4

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1972

Byggingarár

2519 m²

Lóð

Svalir

Geymsla

Þvottahús



8 dagar á sölu

sell

74.900.000 kr

703.947 kr/m²

KAUPSTAÐUR fasteignasala kynnir í einkasölu VESTURBERG 4, 111 Reykjavík.

Fimm herbergja ibúð á efstu hæð með þremur svefnherbergjum í Vesturbergi 4, Breiðholti, Smellið hér fyrir staðsetningu.

ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR OG TILBOÐSGERÐ Á SÖLUSÍÐU EIGNARINNAR.

Skipulag íbúðar: Forstofa/skáli, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, gangur, fjögur herbergi, baðherbergi/þvottur.

Í sameign: Sér geymsla, stigahús, hjóla- og vagnageymsla, sorpgeymsla.

Húsið er steypt á fjórum hæðum, byggt árið 1972, eignin er íbúð 106.4 m², þar af geymsla 6.4 m² samkvæmt skráningu HMS.

Nánari lýsing:

Forstofa/skáli, fataskápur, frá forstofu er innangengt í herbergi IV, alrými og á gang.

Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, gengið er niður eitt þrep í „niðurgrafna“ setustofu, útgengt er úr stofu út á vestursvalir.

Eldhús, innrétting og eyja, Electrolux spanhelluborð, háfur, Electrolux ofn í vinnuhæð, innbyggð uppþvottavél í inréttingu, Samsung ísskápur með frysti (fylgir).

Herbergi I, hjónaherbergi, fimmfaldur fataskápur.

Herbergi II, tvöfaldur fataskápur er á gangi framan við herbergið.

Herbergi III, tvöfaldur fataskápur.

Herbergi IV, tvöfaldur fataskápur.

Baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf, vaskinnrétting, upphengt salerni og sturta,

Rafmagns- handklæðaofn, þvottaaðstaða er á baðherbergi.

Gólfefni: Flæðandi er á öllu harðparket frá Parki m rýmum nema stofu og baðherbergi þar eru flísar.

Sumarið 2022 var íbúðin endurnýjuð m.a. var:

Skipulagi íbúðar breytt og eldhús fært í stofu.

Skipt um öll gólfefni, Wild West Oak parket frá Parki á eldhúsi, borðstofu, gangi og herbergjum.

Baðherbergi var endurnýjað 60x60 flísar úr VÍDD, blöndunartæki ýmist úr tengi eða bauhaus. Sérsmíðuð handklæðahilla úr harðvið fyrir neðan vask.

Skipt um allar hurðar innan íbúðar.

Settir upp fataskápar í herbergjum, forstofu og á ganginn.

Sólbekkir endurnýjaðir og múrað í kring.

Farið yfir rafmagn í allri íbúðinni, skipt um tengla og rofa, sett svart.

Skipt um þau gler sem þurfti í íbúðinni.

Skipulag íbúðar er ekki í samræmi við samþykktar teikningar.

Húsið Vesturberg 2-6 er steypt fjöleignarhús á fjórum hæðum, þrír stigagangar eru í húsinu. Húsið er málað að hluta og klætt að utan að hluta til með járni (suður- og austurhlið), járn á þaki. Timburgluggar og hurðar. Malbikað bílaplan er framan við húsið. Lóð er gróin/frágengin.

Lóð, 2.519,0 m² leigulóð í eigu Reykjavíkurborgar, lóðarleigusamningur til 75 ára frá 1. október 1970, skjal nr. 24035.

Staðsetning: Stutt er í alla helstu þjónustu, leik- og grunnskóla, íþróttasvæði, sundlaug og verslun, róleg staðsetning í grónu umhverfi í Breiðholti, útsýni.

Samkvæmt fyrri söluyfirlitum hefur eftirfarandi verið framkvæmt á húsi/sameign:

Austur og suður hlið hússins klædd 2009

Skipt um glugga á austur og suðurhlið 2009

Skipt um alla glugga að framanverðu (vestur), sameignargluggar og eldhúsgluguggar skipt um 2017/2018

Skipt um glugga í alrými og svalarhurð sumarið 2021

Gler sett framan á svalir sumarið 2021

Sameign hefur verið tekin í gegn, rafmagnstafla, skipt um eldvarnarhurðar, málað, teppalagt, flísalagt, hurðir í geymslu, máluð gólf.

Um skoðunarskyldu:

Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kaupstaður fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Upplýsingar sem koma fram í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi – 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1,6% fyrir lögaðila

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 79.900 m.vsk.

5. Ef um nýbyggingu er að ræða er umsýslugjald 129.900 m.vsk.

Allar nánari upplýsingar á skrifstofu: www.kaupstadur.is | Borgartún 29, 105 Reykjavík | Kaupstaður

Opið alla virka daga milli kl. 10:00-15:00. Svarað er í síma milli kl. 09:00-16:00.

Nánari upplýsingar í síma 454-0000 eða kaupstadur@kaupstadur.is

Kort af Vesturberg 4

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð