HÚSASJÁ

Vesturberg 8

01-0101 · 111 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
19 myndir

103 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1970

Byggingarár

2808 m²

Lóð

Svalir

Geymsla

Þvottahús



218 dagar á sölu

sell

72.900.000 kr

709.834 kr/m²

LANDMARK Fasteignamiðlun og Freyja Rúnars löggiltur fasteignasali (s:694-4112 / freyja@landmark.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu:

Mikið endurnýjuð og vel skipulögð 4ja herbergja 102,7 fm íbúð á jarðhæð með útgengt á afgirta timburverönd við Vesturberg 8 í Reykjavík. Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð á síðustu árum: Eldhús, baðherbergi, gólfefni, fataskápar og innihurðar. **Niðurtekin loft með innfelldum ljósum. **Hiti í gólfi á baðherbergi og í eldhúsi. **Gluggar á austurhlið endurnýjaðir. **Nýleg timburverönd með skjólvegg.

Eignin er skráð 102,7 fm skv HMS og er geymsla þar af 5,2 fm.

Nánari lýsing eignar:

Forstofa með fataskáp, parket á gólfi.

Hol/gangur með parket á gólfi, innfelld geymsla með hillum á holi með flísum á gólfi.

Stofa/borðstofa er björt og rúmgóð með parket á gólfi, útgengt á ca 30 fm afgirta, nýlega timburverönd.

Eldhús var endurnýjað af fyrri eigendum með hvítri innréttingu með flísum á milli efri og neðri skápa og miklu skápaplássi, tækjaskápur og útdraganlegur búrskápur, bakaraofn og örbylgjuofn í vinnuhæð, span helluborð, tengi fyrir uppþvottavél og pláss fyrir tvöfaldan ísskáp. Gott borðpláss og borðkrókur, flísar á gólfi og hiti í gólfi.

Herbergi I með fataskápum og parket á gólfi.

Herbergi II með fataskáp og parket á gólfi.

Herbergi III er mjög rúmgott eða um 16 fm með fataskáp og parket á gólfi, möguleiki á á skipta herberginu upp.

Baðherbergi er búið að endurnýja og er með baðkar með sturtugleri, flísalagt í hólf og gólf, upphengt salerni, vaskaskápur og stæði/tengi fyrir þvottavél með skúffu undir. Handklæðaofn og hiti í gólfi.

Sérgeymsla íbúðar er í sameign á jarðhæð.

Sameign: Á jarðhæð er sameiginlegt þvottahús, þurrkherbergi og hjólageymsla.

Sameiginleg bílastæði fyrir framan húsið.

Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð í gegnum árin en árið 2025 var parket endurnýjað á allri íbúðinni ásamt því að um 30 fm timburverönd með skjólvegg út frá stofu var smíðuð. Fyrir það var nýlega búið að endurnýja eldhús, baðherbergi, fataskápa og innihurðar.

Endurbætur á húsinu síðustu ár skv upplýsingum frá húsfélagi:

* Austurhlið og suðurgafl, sprunguviðgerðir og klæddir 2009

* Gluggar og útihurðir endurnýjaðir á austurgafli 2009

* Drenað við austurhlið og suðurgafl 2010

* Þak og rennur endurnýjaðar 2013

* Sprunguviðgerðir og málun útveggja, tréverks og svala á vesturhlið og norðurgafli 2018

* Frárennslislagnir endurnýjaðar og fóðraðar 2023

* Flestir ofnar í sameign endurnýjaðir 2024

* Bílaplan lagfært ágúst 2025 og er verið að fara að setja upp hleðslustaura á bílaplan.

Allar nánari upplýsingar veitir Freyja Rúnars löggiltur fasteignasali í síma 694-4112 eða freyja@landmark.is

---------------------------------------------------------------------------Skoðunar- og aðgæsluskylda:

Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:

Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:

1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.

3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.

3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.

3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK

Pantaðu frítt söluverðmat

Kort af Vesturberg 8

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19
Vesturberg 8, 01-0101 | Húsasjá