HÚSASJÁ

Vesturberg 78

01-0703 · 111 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
26 myndir

64 m²

Stærð

1

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1973

Byggingarár

2538 m²

Lóð

Lyfta

Geymsla

Þvottahús



25 dagar á sölu

sell

49.900.000 kr

784.591 kr/m²

Fasteignamiðlun Grafarvogs kynnir eignina Vesturberg 78, 111 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 07-03, fastanúmer 205-0595 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Vesturberg 78 er skráð 63,6 fm. hjá FMR eignin skiptist í hol, stofu/borðstofu, eldhús, svefnherbergi og baðherbergi. Sér geymsla er í kjallara og þvottahús og hjólageymsla á hæð. ÚTSÝNI!!!

Nánari lýsing

Forstofa með góðum skáp parket á gólfi.

Eldhús : Nýleg hvít innrétting, parket á gólfi.

Stofa/borðstofa eru björt og rúmgóð, parket á gólfi, útgengt er úr stofu út á austursvalir, mikið útsýni er til fjalla og yfir hluta hverfisins.

Svefnherbergi : með góðum skáp, parket á gólfi.

Baðherbergi : Flísar á gólfi og veggjum, sturtuklefi, nýlegt klósett og innrétting.

Geymsla :  Rúmgóð sér geymsla í kjallara hússins.

Þvottaherbergi :  Sameiginlegt á hæðinni með sameiginlegum vélum útgengt er út á suðursvalir úr þvottaherbergi.

Annað : Það eru 8 íbúðir á hæðinni.  Sameiginleg hjólageymsla er á hæðinni. Við húsið er hjólageymsla fyrir rafmagnshjól en ekki er búið að klára þá hjólageymslu.

Eignin er í rótgrónu hverfi, stutt er í leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla, sundlaug og þjónustu svo sem verslanir og heilsugæslu.

Húsfélagið á tvær íbúðir sem eru í útleigu og renna leigutekjur beint í rekstur húsfélagsins. Sameign hússins er snyrtileg.

Útidyrahurðir eru með rafmagnsopnun og myndavélakerfi er bæði í anddyri og að utanverðu við húsið.

Húsið var á síðasta ári múrviðgert og málað og skipt um gler og glugga þar sem þurfti, þá var þak málað fyrir nokkrum árum.

Nánari upplýsingar veitir Árni Þorsteinsson Rekstrarhagfræðingur M.Sc. Löggiltur fasteigna- og skipasali Löggiltur leigumiðlari, í síma 8983459, tölvupóstur arni@fmg.is og Sigrún Stella Einarsdóttir löggiltur fasteigna-skipa og fyrirtækjasali í síma 824 0610 og í tölvupósti stella@fmg.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign: Stimpilgjald af kaupsamningi: 0.8% af fasteignamati eignar fyrir einstaklinga en 1.6% fyrir lögaðila, en 0.4% ef um fyrstu íbúðarkaup er að ræða. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali. Umsýslugjald fasteignasölu, samkvæmt gjaldskrá. Skoðunarskylda kaupanda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp.

Kort af Vesturberg 78

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu