HÚSASJÁ

Vesturberg 78

01-0105 · 111 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
17 myndir

73 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1973

Byggingarár

2538 m²

Lóð

Garður

Lyfta

Geymsla



19 dagar á sölu

sell

54.900.000 kr

750.000 kr/m²

RE/MAX kynna huggulega og vel skipulagða 3.herbergja horníbúð 73,2 m2 á 1.hæð í vel viðhöldnu lyftuhúsi við Vesturberg 78, 111 Reykjavík.

Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu/borðstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og geymslu.

Smelltu hér til að fá allar helstu upplýsingar um eignina

* Frábær fyrstu kaup.

* Húsfélagið á tvær íbúðir sem eru í útleigu og renna leigutekjur beint í rekstur húsfélagsins.

* Húsið var múrviðgert og málað árið 2025 og skipt um gler og glugga þar sem þurfti, þá var þak málað fyrir nokkrum árum.

* Útidyrahurðir eru með rafmagnsopnun og myndavélakerfi er bæði í anddyri og að utanverðu við húsið.

* Íbúðin hefur verið í útleigu sl. 5 ár til sama aðila og ber góðar leigutekjur. Eigandi hefur ekki sjálfur búið í eigninni.

* Leigjandi hefur áhuga á að halda áfram að leigja.

Allar upplýsingar veitir Hilmar Arnarson aðstoðamaður fasteignasala, hilmar@remax.is sími 823-3673.

Nánari lýsing eignar:

Forstofan er með ljósum flísum á gólfi ásamt fatahengi og fataskáp. Rúmgott hol/gangur sem nýtist vel.

Eldhúsið er með snyrtilegri hvítri innréttingu ásamt plastlögðum borðplötum með marmaraáferð. Tengi er fyrir uppþvottavél. Gólfdúkur á gólfi.

Stofa og borðstofa er bjart rými með stórum gluggum í vestur og útgengi út á rúmgóðar svalir. Parket á gólfum.

Hjónaherbergið er með parketi á gólfi og góðum fataskáp.

Barnaherbergið er með parketi á gólfi og fataskáp

Baðherbergið er ljósum flísum á gólfi, vegghengt klósett og snyrtileg innrétting með speglaskáp. Sturtuklefi ásamt handklæðofni. Tengi er fyrir þvottél og þurrkara inni á baði.

Geymsla fylgir íbúðinni staðsett í kjallara.

Sameiginleg hjólageymsla er í sameign. Sameign hússins er mjög snyrtileg.

Um er að ræða rúmgóða þriggja herbergja íbúð á góðum stað við Vesturberg í efra Breiðholti. Grunnskólar (Hólabrekkuskóli og Fellaskóli) og leikskólar, framhaldsskóli (FB), sundlaug, líkamsræktarstöð og Leiknir íþróttfélag eru í stuttu göngufæri. Í hverfinu er öll helsta verslun og þjónusta, heilsugæsla, bókasafn, apótek, stórmarkaður, skyndibitastaðir og fl. Góðar almenningssamgöngur.

Allar upplýsingar veitir Hilmar Arnarson aðstoðamaður fasteignasala, hilmar@remax.is sími 823-3673 og Sveinn Gíslason lögmaður/löggiltur fasteignasali sveinn@remax.is sími 859-5559.

Remax fasteignasala sími 477-7777. www.remax.is

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Kort af Vesturberg 78

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu