Ugluhólar 10
02-0301 · 111 Reykjavík



11 dagar á sölu
71.900.000 kr
597.176 kr/m²
LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir fallega og vel skipulagða 4-5 herbergja enda íbúð á þriðju hæð, ásamt bílskúr við Ugluhóla 10 í viðhaldsléttu litlu fjólbýlishúsi með útgengi út á rúmgóðar suður svalir með fallegu útsýni. Samkvæmt FMR er íbúðarhlutinn 92,6 m2 ásamt óskráðri ca 7 m2 sér geymslu á 1.hæð. Eins fylgir íbúðinni 20,8 m2 bílskúr. Göngufæri er út í náttúruna í Víðidalnum. Einnig er göngufæri í leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla, sundlaug, íþróttamiðstöð, verslanir og fleira í hverfinu.
* Mögulegt að útbúa fjórða herbergið út úr borðstofu.
* Bílskúr í bílskúralengju fylgir íbúðinni.
* Geymsla ekki skráð inn í fermetrafjölda eignarinnar.
* Fallegt útsýni úr stofu og af svölum í átt að Bláfjöllum.
Nánari lýsing:
Forstofuhol með parket á gólfi.
Eldhús opið inn í stofu með málaðri innréttingu með efri og neðri skápum með flísum á milli, gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu, ofn í vinnuhæð,helluborð, parket á gólfi
Stofa og borðstofa með parket á gólfi í opnu og björtu rými, útgengt á svalir sem snúa í suður. Mögulegt að útbúa fimmta herbergið út úr borðstofu.
Hjónaherbergi með parket á gólfi . Tveir gluggar .
Barnaherbergi með parketi á gólfi og fataskáp.
Barnaherbergi með parketi á golfi
Baðherbergi með flísalögðu gólfi og veggjum, innrétting með efri og neðri skápum, baðkar með sturtuaðstöðu, gert er ráð fyrir handklæðaofni, tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla staðsett í sameign í kjallara með hillum Ekki skráð inn í heildar fermetrafjölda eignarinnar er c.a. 7 m2.
Bílskúr með hita og rafmagni, lítið milliloft.
Hjóla- og vagnageymsla:
Húsinu hefur verið haldið vel við í gegnum árin og viðhaldi sinnt jafnt og þétt eftir þörfum eins og má sjá á lista yfir framkvæmdir
2020 – Þakjárn og þakpappi endurnýjað.
2019 – Svalahandrið.
2018 Hurðir inn í hverja íbúð endurnýjaðar og settar eldvarnarhurði .
2024 – Gluggar og gler endurnýjað ásamt hluta útihurða í húsinu.
2025 – Endurnýjun á hitagrind hússins
Húsið er klætt á 3 hliðum.
2026 - Múrviðgerðir og málun á anddyri og norðuhlið hússins. ( verður gert í vor ) hússjóður greiðir
Endurnýjun innan íbúðar
* 2021 ofnar í allri eigninni.
* 2022 Innihurðar endurnýjaðar
* 2022 parket endurnýjað
* 2022 rafmagnstafla endunýjuð
* flestir rofar og tenglar endurnýjaðir
Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna











































