HÚSASJÁ

Súluhólar 2

04-0201 · 111 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
26 myndir

111 m²

Stærð

4

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1978

Byggingarár

9600 m²

Lóð

Garður

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



32 dagar á sölu

sell

69.900.000 kr

628.032 kr/m²

Erling Proppé lgf. & Remax kynna fallega 4ja herbergja endaíbúð á annari hæð með bílskúr í góðu fjölbýli í fjölskylduvænu hverfi í Breiðholti.

// Glæsilegt útsýni til austurs.

// Nýleg eldhúsinnrétting og

// Bílskúr með rafmagni, hita og vatni.

Birt stærð eignar samkvæmt Þjóðskrá Íslands er 111,3 fm, íbúðarými 89,4 fm og bílskúr 21,9 fm.  Geymsla í sameign er c.a. 5 fm

Nánari upplýsingar veita Erling Proppé, löggiltur fasteignasali, S: 690-1300, erling@remax.is

Eignin skiptist í: Forstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, stofu, bílskúr og sérgeymslu í sameign

Nánari lýsing:

Forstofa: Komið er inní rúmgóða forstofu með góðu skápaplássi. Flísar á gólfi.

Svefnherbergi I: Bjart með harðparketi á gólfi.

Svefnherbergi II: Bjart með fataskáp, harðparket á gólfi.

Hjónaherbergi: Er rúmgott með góðu skápaplássi og gengið er útá svalir sem eru meðfram allri íbúðinni. Harðparket á gólfi.

Baðherbergi: Er með flísum á veggjum og gólfi, baðkar með sturtu.

Stofa: Er björt og rúmgóð með glæsilegu útsýni til austurs.

Eldhús: Er með nýlegri eldhúsinnréttingu og góðum borðkrók, innbyggðri uppþvottavél og innbyggðum örbylgjuofni. Harðparket á gólfi.

Bílskúr: Er með rafmagni, heitu og köldu vatni ásamt rafmagnsopnara.

Geymsla: Er á jarðhæð í sameign, ca.5fm sem eru ekki taldir með í birtri stærð eignar.

Sameiginlegt þvottahús: Er á jarðhæð.

Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla: Er á jarðhæð

Húsið var sprunguviðgert og málað 2017 og skipt um gler þar sem þurfti.

Um er að ræða mjög góða fjögurra herbergja íbúð á rólegum og grónum stað í Breiðholti þar sem stutt er í Elliðarárdalinn og Árbæjarlaugina.

Allar nánari upplýsingar:

Erling Proppé lgf. sími 690-1300 eða erling@remax.is

Kostnaður kaupanda vegna kaupa:  Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga  er  0,8%  og lögaðila  1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum,  oftast 1%. Þinglýsingargjald er 2.700 fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. REMAX bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Kort af Súluhólar 2

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð