HÚSASJÁ

Krummahólar 10

01-0506 · 111 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
29 myndir

117 m²

Stærð

4

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1977

Byggingarár

3643 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



8 dagar á sölu

sell

79.700.000 kr

683.533 kr/m²

STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR: Opna og snyrtilega 116,6 fm 4ra herbergja endaíbúð á 5. hæð í lyftuhúsi með bílskúr. Einnig er svalalokun á rúmgóðum suðursvölum og mikið óhindrað útsýni. Húsinu tilheyrir lítil íbúð sem er í útleigu og gengur leigan upp í hússjóð fyrir húsið. Stutt er í alla almenna þjónustu eins og leik- og grunnskóla, stutt í náttúruperluna í Elliðaárdalnum, World Class og sundlaug Breiðholts er ekki langt í burtu ásamt verslunarkjarnanum Hólagarði þar sem m.a. er Bónusverslun, Domino´s, apótek og sportbar. Stutt ganga á stoppistöð fyrir Strætó.

Íbúðin er 91,6 fm (merkt 01-0506) og bílskúr er 25 fm (merkt 04-0102) samtals er eignin skráð 116,6 fm skv skráningu Þjóðskrá Íslands.

Sýningu á eigninni annast Eggert Maríuson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala s.690-1472 eða með tölvupósti: eggert@stofnfasteignasala.is

Forstofa er með flísum á gólfi og upphengi.

Hol/Gangur er með parketi á gólfi.

Stofa er með parketi á gólfi ásamt flísum á hluta af gólfi, þaðan er svo útgengt á rúmgóðar suðursvalir með svalalokun og miklu óhindruðu útsýni í átt að Elliðarárvatni, Bláfjöllum, í átt að Keili og Suðurnesjum.

Eldhús er með korkflísum á gólfi, viðarinnréttingu og flísum á milli efri og neðri skápa.

Svefnherbergin eru þrjú og eru með parketi á gólfum og skápar í tveim af þrem herbergjum.

Baðherbergi er með flísar í hólf og gólf, wc, sturtuklefi, innrétting undir vask og skápur.

Þvottahús er innan íbúðar og er með dúk á gólfi, skápar og hillur, og gluggi með opnanlegt fag.

Geymsla er í sameign á jarðhæð.

Hjóla- og vagnageymsla er í sameign á jarðhæð.

Bílskúr er með stein á gólfi, heitu og köldu vatni ásamt rafmagni.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Kort af Krummahólar 10

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð
Krummahólar 10, 01-0506 | Húsasjá