HÚSASJÁ

Álftahólar 4

02-0602 · 111 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
26 myndir

64 m²

Stærð

2

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1973

Byggingarár

7370 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Þvottahús



17 dagar á sölu

sell

49.900.000 kr

778.471 kr/m²

NÝTT Í SÖLU - ÚTSÝNISÍBÚÐ.

ÁLFTAHÓLAR 4.  FALLEG OG VELSKIPULÖGÐ ÚTSÝNISÍBÚÐ Á 6.HÆÐ Í MJÖG GÓÐU LYFTUHÚSI Á BESTA STAÐ Í EFRA BREIÐHOLTI.  TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING.

Pantið skoðun hjá sölumanni:   Ingólfur Gissurarson lg.fs. S:896-5222   netfang: ingolfur@valholl.is

Valhöll fasteignasala, Síðumúla 27, sími:588-4477 og Ingólfur Gissurarson löggiltur Fasteignasali og leigumiðlari, síðan 1989, sími:896-5222, kynna: Rúmgóð 64,1 fm 2ja herbergja útsýnisíbúð á 6.hæð í 7.hæða lyftuhúsi sunnanvert í Hólahverfi, efra Breiðholti.  Íbúðin er nokkuð upprunaleg en velumgengin.  Stórar suðvestur svalir með glæsilegu útsýni, m.a. Reykjanes, Bláfjöll, Heiðmörk, Kópavog, Álftanes, Faxaflóa og fl.  Getur verið laus við kaupsamning.

SKIPULAG:

Anddyri með góðum skáp.  Stofa með útgengt á rúmgóðar suðvestur svalir með mögnuðu útsýni.  Eldhús með eldri heillegri rennihurða innréttingu, flísar milli skápa, Rafa eldavélakubbur, ísskápur fylgir.  Svefnherbergi með skápum. Baðherbergi flísalagt með baðkari með sturtu í,  vaskinnréttingu og skáp á vegg.  Sérgeymsla á jarðhæðinni og sameiginlegt þvottaherbergi með sameiginlegum vélum.  Gólfefni: Parket á holi, stofu og herbergi. Flísar á baði og dúkur á eldhúsi.  Hússjóður: 28-884.- með framkvæmdagjaldi.  Eignin hefur verið í eigu eldri konu s.l. 25 ár sem nú er komin á Elliheimili.  Eignin selst í núverandi ástandi, sem er að sjá býsna gott þó gamalt sé.

ANNAÐ: Eftirfarandi eru upplýsingar frá húsfélagsstjórn.  það var farið í þakið síðasta sumar ´25 og  2024 var kláruð klæðning á allri framhlið hússins. Norðanmegin hefur ekki verið klætt en þar var málað fyrir nokkrum árum. Þá var skipt um útidyrahurð fyrir 2-3 árum. Það eru búið að vera miklar og kostnaðaarsamar framkvæmdir síðustu ár. Það er aðeins greitt í húsfélagið Álftahólar 4 og síðan hefur það félag greitt hlut þess félags í heildarhúsinu (Álftahólar 4 og 6) í framkvæmdum að utan.  Næsta framkvæmd, sem húsfélagið Á4 stefnir að á næstu misserum, er fóðring á skólpi. Það er hugsanlega til fyrir stórum hluta þeirrar framkvæmdar. sjá yfirlýsingar húsfélags.

Allar nánari upplýsingar og milligöngu um skoðun annast   Ingólfur Gissurarson löggiltur Fasteignasali og leigumiðlari S: 896-5222   ingolfur@valholl.is

Ertu í fasteignahugleiðingum, Þarftu að selja ?  Ég veiti afburða þjónustu og eftirfylgni, byggða á 37 ára samfelldu starfi við fasteignasölu á Íslandi, sanngjörn söluþóknun, hringið þegar ykkur hentar í síma 896-5222.

Kort af Álftahólar 4

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26