HÚSASJÁ

Kríuhólar 4

02-0203 · 111 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
22 myndir

64 m²

Stærð

1

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1974

Byggingarár

7627 m²

Lóð

Garður

Lyfta

Geymsla

Þvottahús



16 dagar á sölu

sell

49.900.000 kr

784.591 kr/m²

*Frábær fyrstu kaup*

Trausti fasteignasala kynnir virkilega fallega og vel skipulagða 63,6 fm. 2ja herb. íbúð á 2.hæð í  lyftuhúsi.

Íbúðin sem hefur verið mikið endurnýjuð er opin og björt skiptist í forstofuhol, baðherbergi, eldhús, stofu og eitt svefnherbergi.

Húsið lítur vel út og er klætt að utan. Stutt er í alla helstu þjónustu auk skóla og leikskóla.

Allar nánari upplýsingar veitir Þorbjörn Geir Ólafsson löggiltur fasteignasali í síma: 895-5198 eða á bjossi@trausti.is

NÁNARI LÝSING:

Forstofuhol með fataskáp og skóhirslu. Parket á gólfi.

Stofa er björt og rúmgóð, úr stofu er útgengi á góðar svalir til vesturs. Parket á gólfi.

Eldhús tengist stofu í opnu rými, hvít innrétting með góðu skápa- og hilluplássi. Parket á gólfi.

Hjónaherbergi er bjart og rúmgott. Parketi á gólfi.

Baðherbergi sem er flísalagt er með baðkari. Hvít snyrtileg baðinnrétting og tengi fyrir þvottavél.

Þvottahús er í sameign en tengi fyrir þvottavél á baði.

Geymsla sem ekki er inni í fermetratölu er í sameign auk sameiginlegrar vagna- og hjólageymslu í kjallara.

Sameignin er snyrtileg og vel umgengin.

Húsið er klætt að utan og lítur mjög vel út.

Hér er á ferð virkilega falleg, mikið endurnýjuð og frábær eign sem fyrstu kaup!

Nánari upplýsingar veitir Þorbjörn Geir Ólafsson löggiltur fasteignasali, í síma 895-5198, tölvupóstur bjossi@trausti.isForsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Kort af Kríuhólar 4

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð