HÚSASJÁ

Blikahólar 6

03-0302 · 111 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
43 myndir

175 m²

Stærð

3

Herbergi

1974

Byggingarár

12786 m²

Lóð

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



345 dagar á sölu

sell

97.900.000 kr

558.790 kr/m²

OPIÐ HÚS - BLIKAHÓLAR 6 - MIÐVIKUDAGINN 11. MARS - FRÁ KL.17.00 - 17.30.

Eggert löggiltur fasteignasali verður á staðnum.

STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR: Um er að ræða rúmgóða 175,2 fm 4ra herbergja íbúð á þriðju og efstu hæð í snyrtilegu fjölbýli ásamt tveimur bílskúrum þar sem búið er að útbúa snyrtilega stúdíó íbúð úr öðrum bílskúrnum (33,8 fm). Báðir bílskúrarnir eru í útleigu. Íbúðin hefur fengið gott viðhald á undanförnum árum þar sem meðal annars er búið að skipta um glugga og gler í hluta íbúðar og sömuleiðis búið að skipta um hluta ofna innan íbúðar.

Stutt er í alla helstu þjónustu svo sem verslunarkjarnann Hólagarð sem hýsir m.a. Bónus, apótek, sportbar og Dominos. Stutt er svo í leik- og grunnskóla og aðra þjónustu ásamt því að gott strætisvagnakerfi er í göngufæri frá íbúðinni.

Íbúðin er 108,3 fm (merkt 03-0302), geymsla er 6,1 fm (merkt 03-0012), bílskúr er 33,8 fm (merkt 03-0002) og bílskúr sem er 27,0 fm (merkt 09-0101) samtals er eignin skráð 175,2 fm skv. skráningu Þjóðskrá Íslands.

Sýningu á eigninni annast Eggert Maríuson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala. s.690-1472 eða með tölvupósti: eggert@stofnfasteignasala.is

Forstofa er með parket á gólfi og skápum.

Hol er með parketi á gólfi og hillum sem eru fylltar fallegum blómum.

Stofa er rúmgóð með parketi á gólfi og þaðan er útgengt á rúmgóðar suðursvalir.

Eldhús er með flísum á gólfi, hvítri innréttingu, svört borðplata ásamt svörtum flísum á milli efri og neðri skápa, háfur fyrir ofan helluborð.

Svefnherbergin eru þrjú og eru með plastparket á gólfum og skápar í tveimur af þrem herbergjum.

Baðherbergi er með flísar á gólfi og á hluta veggja, baðkar með sturtu, upphengt wc, gluggi með opnanlegt fag og handklæðaofn.

Þvottahús er á baðherbergi, tengi fyrir þvottavél, einnig er þurrkherbergi í sameign á jarðhæð.

Geymsla í sameign á jarðhæð.

Hjóla- og vagnageymsla í sameign.

Bílskúr I er búið að útbúa sem stúdíó íbúð og þar eru flísar á gólfi

Bílskúr II er með steypt gólf, heitt og kalt vatn, gluggi og tenglar fyrir rafmagn. Bílskúrinn er í leigu eins og er.Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Kort af Blikahólar 6

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð