HÚSASJÁ

Hrafnhólar 2

01-0302 · 111 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
17 myndir

79 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1974

Byggingarár

7121 m²

Lóð

Garður

Svalir

Geymsla



29 dagar á sölu

sell

57.900.000 kr

730.139 kr/m²

LANDMARK fasteignamiðlun og Monika Hjálmtýsdóttir, löggiltur fasteignasali – 823-2800 / monika@landmark.is kynna:

Bjarta og vel skipulagða þriggja herbergja 79,3 fm endaíbúð á þriðju hæð við Hrafnhóla 2 í Reykjavík.

Birt stærð íbúðar er 73,3 fm og geymslu er 6 fm, samtals 79,3 fm skv. fasteignaskrá. Eignin skiptist í hol, gang, tvö svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, stofu og geymslu.

✅ Björt og rúmgóð endaíbúð með tveimur svefnherbergjum

✅ Snyrtileg og vel skipulögð eign

✅ Glæsilegt útsýni

✅ Stutt í alla helstu þjónustu í hverfinu

Nánari lýsing

Hol: Harðparket á gólfi.

Gangur: Fataskápur, harðparket á gólfi.

Eldhús: Hvít innrétting, helluborð, gufugleypir, bakarofn og tengi fyrir uppþvottavél. Innst í eldhúsi er borðkrókur undir glugga, flísar á gólfi.

Stofa og borðstofa: Björt og rúmgóð með víðfemu útsýni, harðparket á gólfi. Útgengi á svalir í austur.

Svefnherbergi: Tvö svefnherbergi, fataskápur í öðru þeirra, harðparket á gólfi.

Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með salerni, baðkari og sturtu yfir, baðinnréttingu, speglaskáp, tengi fyrir þvottavél.

Geymsla: Sér geymsla í kjallara.

Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.

Staðsetning

Mjög góð staðsetning framarlega í hólahverfinu í efra Breiðholti. Glæsilegt útsýni og stutt í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla, verslun, heilsugæslu, sundlaug, líkamsrækt.

Afhending

Eignin er tilbúin til afhendingar eftir samkomulagi.

Sækja HÉR söluyfirlit samstundis

Viðhaldssaga

Skipt var um teppi og sameign máluð árið 2019

Húsið viðgert og yfirfarið árin 2016 og 2017,

Íbúðin var endurnýjuð að hluta árið 2017 af fyrri eiganda, skipt um eldhúsinnréttingu og baðinnréttingu, gólfefni, innihurðir, tengla/ rofa, svalahurð ofl.

Hafðu samband fyrir nánari upplýsingar og skoðun:

Monika Hjálmtýsdóttir, löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur – 823-2800 / monika@landmark.is

Júlíus Jóhannsson, löggiltur fasteignasali – 823-2600 / julius@landmark.is

Láttu okkur sjá um söluna fyrir þig – við veitum þér faglega söluráðgjöfSkoðunar- og aðgæsluskylda:

Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:

Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:

1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.

3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.

3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.

3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK

Pantaðu frítt söluverðmat

Kort af Hrafnhólar 2

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð