HÚSASJÁ

Hjaltabakki 14

07-0201 · 109 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
31 myndir

105 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1968

Byggingarár

8594 m²

Lóð

Garður

Svalir

Geymsla



49 dagar á sölu

sell

67.900.000 kr

646.051 kr/m²

Falleg, björt og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð á 2. hæð við Hjaltabakka 14, 109 Reykjavík. Leiksvæði í garði á milli húsa. Árin 2020-2021 var mikil viðhaldsvinna unnin á húsinu skv. seljanda. Skipt var um glugga og gler, svalahurðir og tréverk í útveggjum, steinsteypuviðgerðir, húsið málað og að hluta klætt með áli, svalagólf epoxýlökkuð. Stutt í alla helstu þjónustu, góðar gönguleiðir og fallega náttúru. Íbúðin er laus mánaðarmót mars/apríl 2026.

Forstofa og gangur eru parketlögð.

Stofa er björt og opin við eldhús. Parket á gólfi.

Eldhús er bjart og opið við stofu. Falleg hvít innrétting. Ofn í vinnuhæð. Útgengi á skjólgóðar suðursvalir með útsýni yfir tré og gróður.

Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Sturtuklefi. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Hjónaherbergi er rúmgott með góðu skápaplássi. Parket á gólfi.

Svefnherbergi II er rúmgott. Góðir skápar. Parket á gólfi.

Svefnherbergi III er þokkalega rúmgott. Góður skápur. Parket á gólfi.

Í kjallara er mjög rúmgóð 14 fm. geymsla sem fylgir íbúð. Hjólageymsla í sameign.

Sameiginleg bílastæði við húsið.

Sameign er snyrtileg.

Að sögn seljanda voru vatnslagnir í íbúð hreinsaðar 2025.

Rafmagnstafla í sameign endurnýjuð 2025.

Upprunalegt viðarparket er á gólfum í íbúð fyrir utan baðherbergi.

Hluti innbús má fylgja fyrir sanngjarnt verð.

Nánari upplýsingar veitir Styrmir Þór Sævarsson löggiltur fasteignasali í síma 846-6568 eða á netfanginu styrmir@lf-fasteignasala.is.

Kort af Hjaltabakki 14

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð