HÚSASJÁ

Hjaltabakki 8

04-0202 · 109 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
24 myndir

102 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1968

Byggingarár

8594 m²

Lóð

Garður

Þvottahús



15 dagar á sölu

sell

69.900.000 kr

688.670 kr/m²

Fasteignasalarnir Vernharð Þorleifsson og Magga Gísladóttir kynna virkilega vel skipulagða fjögurra herbergja íbúð á annarri hæð á mjög snyrtilegum stigagangi.

Íbúðin hefur nýlega verið mjög mikið endurnýjuð að innan og húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum árin.

Samkvæmt þjóðskrá Íslands er íbúðin skráð 91,1 fm, sérgeymsla í kjallara sem er 10,4 fm eða samtals 101,5 fm.

Frekari upplýsingar veita Vernharð Þorleifsson löggiltur fasteignasali í síma 699-7372 / venni@remax.is og Magga Gísladóttir löggiltur fasteignasali í síma 698-7494 / magga@remax.is

Kíktu í heimsókn til okkar á Facebook eða á Instagram

Nánari lýsing á íbúðinni:

Komið er inn á rúmgóðan og bjartan forstofugang með stórum fataskáp sem tengir vistverur íbúðarinnar.

Baðherbergið hefur verið nýlega endurnýjað með ljósri og fallegri innréttingu, baðkar með sturtuaðstöðu.

Gott skápapláss er á baðinu og er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara sem hefur verið komið fyrir í sérsmíðuðum skáp. Hiti er í gólfi inn á baði.

Svefnherbergin eru þrjú og fataskápar í tveimur þeirra.

Eldhúsið er með nýlegri innréttingu, Eldhúsið er opið inn í stofu. Útgengt er á góðar vestur-svalir.

Stofan er björt og er opin við eldhús, rúmast einnig sem borðstofa.

Fallegt eikarparket er á gólfum nema á baðherberginu sem er flísalagt.

Í sameign er hjólageymsla og þvottahús og 10,4 fm sérgeymsla.

Lóðin er snyrtileg og barnvæn með leiksvæði fyrir þau yngstu.

Frábær fjölskyldueign í góðu húsi.

Framkvæmdir seinustu ára á sameign:

2021: Allir gluggar og gler endurnýjað. Útihurðir í sameign endurnýjaðar. Þakjárn yfirfarið og málað. Þakkantur lagaður og þakrennur endurnýjaðar. Tréverk endurnýjað og áklætt. Klæðning sett á austurhlið hússins.

2022: Múrviðgerðir og húsið málað.

2023: Skipt um teppi á stigagangi.

Hægt er að fá senda Ástandsskýrslu sem unnin var af Verkís 2019

Kort af Hjaltabakki 8

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð
Hjaltabakki 8, 04-0202 | Húsasjá