HÚSASJÁ

Skriðustekkur 16

04-0101 · 109 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
46 myndir

241 m²

Stærð

6

Herbergi

8

Svefnherbergi

5

Baðherbergi

1968

Byggingarár

3829 m²

Lóð

Garður

Bílastæði

Þvottahús

Heitur pottur

Auka íbúð



5 dagar á sölu

sell

177.500.000 kr

554.514 kr/m²

Miklaborg kynnir: Fallegt einbýlishús á tveimur hæðum með 3 aukaíbúðum sem hefur fengið gott viðhald. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er húsið skráð 241,1 fm en samkvæmt mælingum frá Arkþing sem eigandi lét framkvæma árið 2019 er húsið 336,2 fm. Samkvæmt þeirri mælingu er neðri hæðin 164 fm og efri hæðin 172,2 fm. Á efri hæð er 4ra herbergja íbúð með útgengi á stóran afgirtan pall með heitum potti. Neðri hæðinni hefur verið skipt upp í þrjár íbúðir sem allar eru með sérinngangi.

Nánari lýsing

Efri hæð

Komið er inn um sérinngang í hol sem leiðir að öllum vistarverum íbúðarinnar. Á vinstri hönd er flísalagt baðherbergi með upphengdu salerni og baðkari með sturtuaðstöðu. Fyrir framan baðherbergi er opin þvottaaðstaða með tengi fyrir þvottavél og þurrkara sem hægt er að loka af. Á svefnhergisgangi eru þrjú góð svefnherbergi. þar af er stór hjónasvíta með baðherbergi með góðri innréttingu, 'walk in' sturtu og upphengdu salerni. Eldhús er með eyju, góðu vinnu- og skápaplássi, ofni í vinnuhæð og er opið við stofu. Stofan er stór og björt og þaðan er útgengt á sólríkan pall með heitum potti sem snýr í suður.

Neðri hæð

Aukaíbúð 1

Er 3ja herbergja íbúð með sérinngang á vinstri hlið hússins. Íbúðin skiptist í tvö svefnherbergi, stofu, baðherbergi með 'walk in' sturtu og fullbúið eldhús. Tengi er fyrir þvottavél á baðherbergi.

Aukaíbúð 2

Er 3ja herbergja íbúð með sérinngangi á hægri hlið hússins. Íbúðin skiptist í þrjú svefnherbergi, baðherbergi með sturtu og fullbúið eldhús með tengi fyrir þvottavél.

Aukaíbúð 3

Er stúdíóíbúð með sérinngangi á hægri hlið hússins. Íbúðin skiptist í alrými með svefnaðstöðu, stofu og fullbúnu eldhúsi og baðherbergi með 'walk in' sturtu. Þvottaaðstaða er inni á baðherbergi.

Allar nánari upplýsingar veita

Stefán Jóhann Stefánsson löggiltur fasteignasali í síma 659-2634 eða stefan@miklaborg.is

Þröstur Þórhallsson löggiltur fasteignasali í síma 897-0634 eða throstur@miklaborg.is

Kort af Skriðustekkur 16

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð