HÚSASJÁ

Fornistekkur 10

01-0101 · 109 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
29 myndir

220 m²

Stærð

6

Herbergi

5

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1971

Byggingarár

4236 m²

Lóð

Garður

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur



326 dagar á sölu

sell

144.900.000 kr

658.636 kr/m²

LIND fasteignasala kynnir fallegt og vel skipulagt einbýli á einni hæð með bílskúr við Fornastekk 10 í Reykjavík. Fimm svefnherbergi, stórar, samliggjandi stofur með mikilli lofthæð, stórt og bjart eldhús og sér þvottahús. Baðherbergi og gestasnyrting. Stór sólstofa er fyrir framan stofur þaðan sem útgengt er á skjólgóðan og glæsilegan pall sem hannaður var af Stanislav Bohic. Heitur pottur og útisturta. Þakið var málað 2025. Húsið stendur innst í lokuðum botnlanga í rólegu og fjölskylduvænu hverfi. Frábær staðsetning þaðan sem stutt er í fallegar gönguleiðir og alla helstu þjónustu.

Forstofa: Flísar á gólfi, fataskápur.

Gestasnyrting: Inn af forstofu. Dúkur á gólfi, handlaug, salerni.

Svefnherbergi 1: Inn af forstofu. Parket á gólfi, fataskápur. Gluggi opnast inn í sólstofu.

Svefnherbergi 2: Lítið herbergi inn af forstofu, parket á gólfi, opnanlegur gluggi.

Eldhús: Rúmgott og bjart, dúkur á gólfi, hvít innrétting með góðu skápaplássi.

Þvottahús: Inn af eldhúsi. Flísar á gólfi, borðplata með skolvaski, sturta, fataskápur. Útgengt er úr þvottahúsi út í garð.

Stofa og borðstofa eru samliggjandi í opnu, björtu rými með mikilli lofthæð. Parket á gólfi, arinn. Stórir gluggar beggja vegna setja svip sinn á rýmið.

Sólstofa: Parket á gólfi. Útgengi á skjólgóðan og glæsilegan pall með heitum potti og útisturtu.

Hjónaherbergi er með sér fataherbergi inn af. Parket á gólfi.

Svefnherbergi 4: Parket á gólfi.

Svefnherbergi 5: Parket á gólfi, fataskápur.

Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum, innrétting með handlaug, baðkar, upphengt salerni, opnanlegur gluggi.

Bílskúr: Steypt gólf, heitt og kalt vatn, opnanlegur gluggi. Hiti er í bílastæðum.

Geymsla er fyrir aftan bílskúr, innangengt úr sólstofu.

Allar nánari upplýsingar veitir:

Lára Þyri Eggertsdóttir, löggiltur fasteignasali/B.A. í lögfræði í síma 899-3335 eða lara@fastlind.is

Framkvæmdir undanfarin ár að sögn seljenda:

2025 Þak málað og viðgerðir framkvæmdar á skorsteini.

2019 Timbur í gólfi og veggjum á palli endurnýjað.

2019 Gluggar pússaðir að utan og málaðir.

2019 Hús málað að utan.

2019 Hluti ofnalagna endurnýjaður: Í sólstofu, suðurhluta stofu og stærra forstofuherbergi.

1998 Þakjárn endurnýjað. Þak lengt fram yfir sólstofu. Þaki lyft á bílskúr (nýtt þak sett ofan á eldra þak).

1998 Gler í sólstofu endurnýjað (að frátöldum opnanlegum fögum), einnig á svefnherbergisgangi og í bílskúr.

1998 Sturta í þvottahúsi endurnýjuð og flísalögð.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Lind fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Kort af Fornistekkur 10

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29