Þangbakki 8
01-0101 · 109 Reykjavík



18 dagar á sölu
65.000.000 kr
525.040 kr/m²
Gimli fasteignasala og Sigþór Bragason Lögg.fasteignasali sími 899 9787 kynna: Glæsilegt 123,8 m² atvinnuhúsnæði í Mjódd. Allar innréttingar eru sérsmíðaðar og hannaðar af Helga Hjálmarssyni arktekt og eru sérlega vandaðar og tímalausar. Frábær staðsetning og mikið af bílastæðum. Húsnæði sem hentar undir margskonar starfsemi.
Nánari lýsing:
Sér inngangur.
Flísalögð gestasnyrting við forstofu.
Biðstofa innan við forstofu.
Móttaka með hurð og gler skilrúmi
Þrjú góð skrifstofu / vinnurými.
Kaffistofa með innréttingum.
Starfsmanna aðstaða með sturtuklefa.
Ræsti herbergi.
Húnæðið hefur verið nýtt sem tannlæknastofa og er allt mjög snyrtilegt og vel innréttað. Eign sem getur nýst sem skrifstofur eða undir margskonar þjónustu. Léttir veggir eru í rýminu og auðvelt að breyta skipulagi ef vill.
Mjög stórt bílaplan er framan við bygginguna og aðgengi þægilegt.
Ein stærsta skiptistöð Stætó er í Mjóddinni og liggur þett vel við þjónustu við allt höfuðborgarsvæðið og nágranna sveitafélög.
Þetta er sérlega glæsilegt húsnæði á frábærum stað miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu.
Nánari upplýsingar veitir Sigþór Bragason, Löggiltur fasteigna, fyrirtækja og skipasali, í síma 899 9787, eða sendu fyrirspurn með tölvupósti á sb@gimli.is .
Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.
Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.
Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.
Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni.
Gimli gerir betur...

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir



















