HÚSASJÁ

Víkurbakki 30

05-0101 · 109 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
44 myndir

201 m²

Stærð

5

Herbergi

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1973

Byggingarár

1390 m²

Lóð

Sérinngangur

Geymsla

Þvottahús



1 dagar á sölu

sell

119.900.000 kr

596.517 kr/m²

RE/MAX / Brynjar Ingólfsson kynnir: Vel viðhaldið endaraðhús í bökkunum.

- LAUS VIÐ KAUPSAMNING

- Viðhaldslisti frá 2013-2026 hér fyrir neðan

- Arinn

- Fasteignamat 106.800.000 kr.

- 2 hellulögð bílastæði

- Stór garður með útgengi frá neðri hæð og stiga frá svölum

Nánari lýsing:

Anddyrið er með flísum á gólfi og fallegum sérsmíðuðum fataskáp.

Gestasalerni er við anddyrið. Klósett, vaskur með skáp, ofn og gluggi fyrir loftun. Flísalagt í hólf og gólf.

Herbergi 1 er við anddyrið. Nýtt eikarparket á gólfi.

Stofan er á efsta palli. Eikarparket á gólfi. Fallegur arinn. Bjart og rúmgott rými.

Borðstofan er í opnu rými milli stofu og eldhúss.

Stórar svalir sem útgengt er á frá stofu. Stigi er frá svölunum niður í garð.

Eldhúsið er með hvítri innréttingu, flísar á milli skápa. Stæði fyrir uppþvottavél.

Á neðri palli er hol með skápum á báðum hliðum.

Herbergi 2 / hjónaherbergið er á neðri palli. Parket á gólfi, stór fataskápur. Útgengi út í bakgarð.

Herbergi 3 er við hjónaherbergið er búið er að taka niður vegginn þar og búa til sjónvarpshol úr því. Auðvelt að setja upp vegginn aftur.

Herbergi 4 er með parket á gólfi og vísar gluggi út í bakgarðinn.

Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf. Baðkar, sturtuklefi, klósett, handklæðaofn og stórar innréttingar.

Í kjallara er stórt þvottahús með innréttingu og vinnuvaski. Dúkur á gólfi. Einnig eru 2 geymslur á hæðinni.

Bílskúrinn er innangengur. Flísar á gólfi, tveir vinnuvaskar.

Lóðin: Pallur er að hluta fyrir framan húsið. Fyrir aftan er pallur að hluta og hellur.

Framkvæmdir síðastliðin ár:

2013 Stigi endursmíðaður og nýtt handrið á stiga

2014 Gestabað endurnýjað og smíðaðar innréttingar i anddyri

2015 Bílskúr flísalagður.

2015 Sett dúk í dós á þakið

2015 hús málað að utan litur „Apotek hálfur“ frá Slippfélaginu

2017 skipt um sturtuklefa og 3 miðstöðvarofna, inn í þvottahusi, gestabaði og bílskúr

2017 skipt um klæðningu á bílskúrshurð og hún einangruð

2019 svalahandrið fjarlægt og brotið 30 cm framan af svalagólfi og endursteypt, sett nýtt stálhandrið

2019 skipt um parkett á stofu

2023 sett ný svalahurð í stofu, skipt um alla gluggalista og þakþétting á neðra þaki og uppvið húsvegg

2025 sett „dúk í dós“ á allt þakið, efni frá Sindra

2025 kaldir veggir á svölum klæddir með álplötu og timburklæðningu. Borið á allt tréverk

2026 skipt um parkett á herbergi við anddyri

Allar frekari upplýsingar um eignina veitir:

Brynjar Ingólfsson MSc, löggiltur fasteignasali í síma 666 8 999 / brynjar@remax.is

Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Hafið samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Kort af Víkurbakki 30

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð