HÚSASJÁ

Víkurbakki 8

04-0101 · 109 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
48 myndir

177 m²

Stærð

7

Herbergi

5

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1972

Byggingarár

1390 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



11 dagar á sölu

sell

131.500.000 kr

619.991 kr/m²

Domusnova hefur fengið í einkasölu einkar gott raðhús að Víkurbakka 8. Eignin hefur verið endurnýjuð á smekklegan hátt innihurðir (nema í kjallara), gólfefni og innréttingar á baðherbergjum og eldhúsi hefur allt verið endurnýjað ásamt frárennslislögnum og gleri að stærstum hluta. Góður pallur (útgengt úr hjónaherbergi), stórar svalir sem snúa til vesturs útúr stofu. Frábær staðsetning rétt við Mjóddina. Stutt er í skóla, leikskóla, verslanir og leiðir útúr bænum. Góð eign fyrir stækkandi fjölskyldu.

Ekki verður opið hús, vinsamlega bókið skoðun hjá Árna í síma 6634290 eða á arni@domusnova.is

Þegar komið er inn í anddyri er herbergi á hægri hönd en gestasnyrting á vinstri hönd. Gengið er upp tröppur inní rúmgóða stofu og borðstofu, eldhús á hægri hönd. Til vinstri er pallur aðeins ofar en aðrir hlutar stofunnar. Á neðri hæð er gott baðherbergi og þrjú svefnherbergi. Í óskráðu rými á neðstu hæð er góð geymsla, ágætt herbergi og rúmgott þvottahús en þessi hluti er að mestu óskráð rými. Eignin er skráð 177,1fm en hið óskráð rými er nálægt 35fm að stærð.

Stofur með góður parketi, borðstofa, og efri pallur útgengt á svalir til vesturs úr stofu, þar nýtur sólar frá hádegi til kvölds.

Eldhús með góðri innréttingu, flísar á gólfi og á milli bekkjar og skápa.

3 herbergi, með parketi á gólfum, góðir skápar í hjónaherbergi, og er þaðan útgengt á pall/garð. Á minni herbergjunum er plastparket en til er parket eins og er á hjónaherbergi og fylgir það með í kaupum.

Endurnýjað baðherbergi er á herbergjagangi, flísalagt gólf og í kringum sturtu og vaska, opin sturta, upphengt salerni, handklæðaofn og hiti í gólfi.

Geymsla/búr er einnig á herbergjagangi.

Gestasnyrting er við forstofuherbergi ásamt ágætri forstofu með skáp.

Á neðstu hæð er óskráð rými, og er gengið niður í það af herbergjagangi. Þar eru tvær geymslur, önnur lítil, gott hobby-herbergi og rúmgott þvottahús, rýmið er samtals um 35fm að innanmáli en er ekki inní heildarfermetratölu íbúðar. Þar eru upprunalegar flísar og sums staðar sér á fúgu, innihurðir upprunalegar.

Bílskúr er með vatni og rafmagni.

Viðhald:

Skipt var um þakplötur 2003.

Eldhús var endurinnréttað árið 2005.

Stofa, borðstofa og efri pallur parketlagður 2005.

2010 til 2012 voru endurnýjjuð forstofa og forstofuherbergi, flísalagt á neðri hæðum (gangar og stigi) og skipt um innihurðar.

Frárennslislagnir voru fóðraðar 2012 útí lóð.

2012 var baðherbergi endurnýjað ásamt vatnslögnum, frá inntaki og þaðan uppí eldhús.

2014 var skipt um 8 ofna.

Skipt var um gler á efri hæð og efsta palli 2014/2015 sem og forstofuherbergi.

Smellið hér til að fá söluyfirlit sent.

Nánari upplýsingar veita:

Árni Helgason löggiltur fasteignasali / s.663 4290 / arni@domusnova.is

Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:

Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

Nýtt - Eignin er nýbygging.

Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.

Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.

Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.

Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Kort af Víkurbakki 8

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36Mynd 37Mynd 38Mynd 39Mynd 40Mynd 41Mynd 42Mynd 43Mynd 44Mynd 45Mynd 46Mynd 47Mynd 48