HÚSASJÁ

Skógarás 17

03-0301 · 110 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
26 myndir

116 m²

Stærð

2

Herbergi

1

Baðherbergi

1986

Byggingarár

4157 m²

Lóð

Garður

Svalir

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



38 dagar á sölu

sell

79.000.000 kr

676.370 kr/m²

Pétur Ásgeirsson löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX fasteignasölu kynnir : Einkar fallega og bjarta 90,5 fm þriggja herbergja íbúð á annarri hæð með bílskúr í fjölbýlishúsi á eftirsóttum stað við Skógarás 17 í Reykjavík.  Íbúðinni fylgir 8,4 fm geymsla og 26,3 fm bílskúr og er eignin því samtals 116,8 fm að stærð. Gull fallegt útsýni er í austurátt úr herbergjunum yfir Rauðavatn og Heiðmörkina. Húsið hefur fengið gott viðhald.

Eignin skiptist í forstofu, gang/hol, stofu, eldhús, baðherbergi, geymsla/búr innan íbúðar, þvottahús og tvö svefnherbergi.

Hér getur þú gengið í gegnum eignina í 3D: Ýtið hér

// Mikið endurnýjað að utan.

// Stórt alrými.

// Góð Staðsetning.

// Glæsilegur bilskúr.

// Stórar svalir

// Stutt í alla þjónustu.

Umfangsmiklu viðhaldi á húsinu utandyra lauk 2021, múrviðgerð, málun og nýtt þakjárn og þakkantur.

Falleg aðkoma er að húsinu. Stigagangur upp í íbúðina og sameign er mjög snyrtileg. Ný hljóðeinangrandi eldvarnarhurð er á íbúðinni.

Nánari lýsing:

Forstofa: Flísar á gólfi og með fataskáp.

Stofa/borðstofa: Parket á gólfi og er mjög rúmgóð. Útgengi út á mjög stórar svalir sem snúa í suðvestur.

Eldhús: Parket á gólfi, mjög snyrtilegri eikarinnréttingu frá Ikea sem er með miklu skápaplássi, flísalagt er á milli skápa.

Þvottahús/ búr: Er inn af eldhúsi og mjög snyrtilegt og með skápum.

Baðherbergi: Er flísalagt í hólf og gólf með baðkari, sturtuklefa og góðri innréttingu.

Hjónaherbergi: Parket á gólfi og stórum fataskáp.

Barnaherbergi: Parket á gólfi.

Geymsla: Er mjög stór og er með hillum.

Bílskúrinn: Er mjög rúmgóður og fínn, Hann er fullbúinn með mikilli lofthæð og góðu vinnu- og geymsluplássi.

Í sameigninni er stór og góð geymsla og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Sameignin er að öðru leyti til fyrirmyndar. Hreinsunardagur er haldinn árlega. Öll umhirða sameignar og lóðar er aðkeypt

Þetta er virkilega fín eign á góðum og barnvænum stað í Árbænum. Íbúðin hentar ungum og reyndar einnig þeim sem eldri eru sem eru að minnka við sig og vilja hafa bílskúr. Örstutt er í leikskóla, skóla og alla aðra þjónustu. Falleg útivistarsvæði steinsnar frá.

Nánari upplýsingar gefur Pétur Ásgeirsson  löggiltur fasteignasali í síma 893-6513 / petur@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.

Kort af Skógarás 17

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð