HÚSASJÁ

Reykás 41

02-0301 · 110 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
30 myndir

132 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1984

Byggingarár

4811 m²

Lóð

Garður

Svalir

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



165 dagar á sölu

sell

89.900.000 kr

679.003 kr/m²

CROISETTE - KNIGHT FRANK kynna í einkasölu bjarta og rúmgóða þriggja herbergja íbúð á efstu hæð með tvennum svölum og bílskúr samtals 132,4 fm við Reykás 41 í Reykjavík. Eignin er á vinsælum stað í Árbænum og er afar fallegt útsýni frá henni yfir Rauðavatn og nágrenni. Íbúðin er skráð 103,7 fm og skiptist í forstofu, eldhús, borðstofu, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús ásamt 5,5 fm geymslu í sameign. Bílskúr fylgir eigninni og er skráður 23,2 fm. Allar nánari upplýsingar veita Karl Lúðvíksson, löggiltur fasteignasali í s. 663-6700 eða kalli@croisette.is og Elín Auður Traustadóttir löggiltur fasteignasali í s: 858-0978 eða elin@croisette.is

SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT

SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA ÍBÚÐINA Í ÞRÍVÍÐU UMHVERFI (3D)

Nánari lýsing:

Forstofa: Komið inní forstofu frá snyrtilegum stigagangi. Fataskápur og parket á gólfi.

Eldhús: Falleg og rúmgóð innrétting, ofn í vinnuhæð, helluborð, gert ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu. Rúmgóð eyja sem hægt er að sitja við. Parket á gólfi og flísar á veggjum ofan við innréttingu. Þvottahús er innaf eldhúsi.

Stofa/borðstofa: Stofa og borðstofa eru í opnu rými frá eldhúsi. Parket á gólfi. Útgengi á svalir úr stofu með fallegu útsýni.

Svefnherbergi I: Rúmgott svefnherbergi með opnum fataskápum. Parket á gólfi. Útgengi á svalir.

Svefnherbergi II: Rúmgott svefnherbergi. Parket á gólfi.

Baðherbergi: Innrétting með vaski, upphengt salerni og opin sturta. Flísar á gólfi og hluta veggja.

Þvottahús: Er innaf eldhúsi með innréttingu, vaski og tengi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Flísar á gólfi.

Séreymsla er í sameign á neðstu hæð.

Hjóla- og vagnageymsla í sameign á neðstu hæð.

Íbúðinni fylgir 23,2 fm bílskúr í bílskúrslengju á móti bílaplani. Sérbílastæði framan við bílskúr.

Nánari upplýsingar veita:

Karl Lúðvíksson, löggiltur fasteignasali í s. 663-6700 eða kalli@croisette.is

Elín Auður Traustadóttir löggiltur fasteignasali í s: 858-0978 eða elin@croisette.is

Eignin Reykás 41 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 204-6417, birt stærð 132.4 fm.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.

- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.

- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.

Kort af Reykás 41

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30