HÚSASJÁ

Reykás 26

03-0302 · 110 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
45 myndir

190 m²

Stærð

4

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1983

Byggingarár

4918 m²

Lóð

Garður

Svalir

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



6 dagar á sölu

sell

109.900.000 kr

577.509 kr/m²

LIND fasteignasala kynnir vel skipulagða og bjarta 6 herbergja eign í endanum á botnlangagötu í litlu fjölbýli við Reykás 26 í Árbænum. Eignin er skráð alls 190,3 fermetrar, þar af 26,4 fermetra bílskúr. Glæsileg stór stofa og borðstofa með mikilli lofthæð og nýlegu parketi á gólfi ásamt nýlega endurnýjuðu eldhúsi, gengið út á suðursvalir með fallegu útsýni úr alrými. Möguleiki er á að fjölga herbergjum innan eignar.

Nánari upplýsingar veitir:

Arnbjörn Marinósson í síma 822-8574 eða á netfanginu arinbjorn@fastlind.is

Þetta er vel staðsett eign á rólegum stað í Árbænum með þremur svefnherbergjum og möguleika á að bæta því fjórða við. Stutt er í leikskóla, grunnskóla, Árbæjarlaug og íþróttastarf hjá Fylki. Stutt er í Elliðaárdalinn og Heiðmörk. Þetta er góð eign sem hefur fengið gott viðhald.

Nánari lýsing:

Forstofa: Parket er á forstofu og öllu alrýminu sem gengið er inn í frá forstofu.

Hjónaherbergi: Er rúmgott með parketi á gólfi og fataskápum.

Önnur herbergi: Eru mjög rúmgóð og möguleiki á að bæta við herbergi.

Baðherbergi: Hefur að geyma bæði sturtu og bað. Það er mjög rúmgott með sambyggðu þvottahúsi.

Eldhúsið: Var endurnýjað að fullu árið 2023, nýjar innréttingar og tæki.

Stofa og borðstofa: eru samliggjandi í björtu og rúmgóðu rými með aukinni lofthæð og nýlegu parketi á gólfi (2023)

Sjónvarpshol: Er á efri hæð en einnig er hægt að hafa það á gangi neðri hæðar

Bílskúr er 26,4 fermetrar og er staðsettur fyrir framan húsið.

Geymsla er rúmgóð á 1 hæð.

Eignin skiptist í eldhús, stofu, 3 svefnherbergi, baðherbergi, sjónvarpshol, þvottahús inn af baðherbergi og geymslu ásamt  26, fm bílskúr og útsýnissvölum.

Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan,

Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.

-----------------------------------------------------------------------

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila

Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Kort af Reykás 26

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð