HÚSASJÁ

Brekkubær 9

05-0201 · 110 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
30 myndir

120 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1987

Byggingarár

1968 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



30 dagar á sölu

sell

79.500.000 kr

659.751 kr/m²

LANDMARK fasteignamiðlun og Sveinn Eyland, lögg. fasteignasali s: 6900 820 / sveinn@landmark.is kynna:

Um er að ræða vel skipulagða þriggja/fjögurra herbergja 120.5 fm íbúð annari hæð í raðhúsalengju á þessum vinsæla stað í Árbænum.

Sérinngangur er inn í íbúð og bílastæði með íbúð er staðsett beint framan við inngang í íbúð.

Í raðhúsalengjunni við Brekkubæ 1-11 eru tvær íbúðir í hverju húsi og báðar með sér inngangi.

Frábær staðsetning þar sem að stutt er í alla þjónustu, skóla, leikskóla, íþróttar, útivistarsvæði og í Árbæjarlaug.

ÍBÚÐ ER LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING.

Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands:

Íbúð á hæð er 102.8 fm merkt 05-02-01 og geymsla/herbergi er 17.6 fm merkt 05-00-02, samtals 120.5 m2 að stærð.

Nánari upplýsingar um eign:

Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 eða sveinn@landmark.is

FÁÐU SENT SÖLUYFIRLIT YFIR EIGN STRAX HÉR.

Eignin skiptist í:

Forstofu/hol, stigagang, herbergjagang, stofu/borðstofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi,  vinnuherbergi og geymslu í kjallara.

Nánari lýsing á eign:

Komið er inn um sérinngang beint frá sér bílastæði sem er snyrtilega hellulagt.

Forstofa með snyrtilegu teppi og er stigi uppá pall þaðan sem að gengið er inn í íbúðina, úr forstofu er einnig gengið niður stiga þar sem er geymsla og vinnuherbergi í kjallara.

Hol/herbergjagangur þaðan sem að gengið er í önnur rými íbúðar.

Stofa/borðstofa er opið og bjart rými og er útgengt út á rúmgóðar suður-svalir.

Eldhús er hálfopið inn í stofu og er hlaðinn glerveggur sem stúkar af eldhús og stofu/borðstofu, snyrtileg eldri innrétting með efri og neðri skápum og eru flísar á vegg milli skápa, uppþvottavél og ísskápur í innréttingu sem að fylgir með í kaupum.

Tvö góð svefnherbergi með fataskápum.

Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, baðkar með sturtuhengi, ágætis innrétting undir vask með skúffum og veggskápum .

Þvottahús með innréttingu og er skolvaskur í borðplötu.

Í kjallara er vinnuherbergi og geymsla innaf því.

Gólfefni: Parket, harðparket, flísar og teppi á gólfum eignar.

-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar mig allar tegundir eigna á skrá.

-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.

-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða sveinn@landmark.is

Skoðunar- og aðgæsluskylda:

Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:

Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:

1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.

3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.

3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.

3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK

Pantaðu frítt söluverðmat

Kort af Brekkubær 9

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu