HÚSASJÁ

Hraunbær 192

10-0302 · 110 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
31 myndir

89 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1967

Byggingarár

19577 m²

Lóð

Garður

Geymsla

Þvottahús



19 dagar á sölu

sell

66.900.000 kr

752.531 kr/m²

Fasteignasalan TORG kynnir :

Mjög falleg og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á 3 hæð í rólegu fjölbýlishúsi við Hraunbæ í Reykjavík. Nýlega var skipt um þak. Eignin skiptist í forstofu, hol, eldhús, stofu, borðstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og geymslu. Eignin er skráð samkvæmt HMS 88,9 fm og þar af er geymsla skráð 5,5 fm. Nánari upplýsingar veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 eða á Helgi@fstorg.is

NÁNARI LÝSING :

Forstofa er inn í góða forstofu með parketi á gólfi. Eldhús með snyrtilegri ljósri innréttingu, flísar á milli skápa, tengi fyrir uppþvottavél, góður borkrókur við glugga, parket á gólfi. Opið er frá borðkrók inn í stofuna. Stofan er rúmgóð og björt með parketi á gófli, stórir suður gluggar og útgengi út á suður svalir.

Herbergja gangur með skáp og parketi á gólfi. Hjónaherbergi með innbyggðum skápum, parket á gólfi. Annað gott herbergi með parketi á gólfi. Nýstandsett baðherbergi með sturtu, innréttingu við vask, handklæðaofn, flísar á gólfi og veggjum. Tengi fyrir þvottavél. Sér geymsla með glugga á jarðhæðinni ásamt sameiginlegu hjóla/vagnageymslu og þvottahúsi. Húsfélagið á litla íbúð sem leigð er út og stendur undir hluta kostnaðar við rekstur og viðhald hússins. Búið er að skipta um glugga í eldhús, stofu og svalahurð.

Húsið stendur ásamt fleiri húsum við Hraunbæ við stóran garð sem hefur skemmtilega aðstöðu fyrir börn og unglinga með leiktækjum, körfuboltaspjöld og fótboltamörkum í góðu skjóli.

Nánari upplýsingar veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 eða á Helgi@fstorg.is

Kort af Hraunbær 192

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð