HÚSASJÁ

Rofabær 43

01-0201 · 110 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
40 myndir

82 m²

Stærð

3

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1967

Byggingarár

19577 m²

Lóð

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



28 dagar á sölu

sell

58.900.000 kr

718.293 kr/m²

** HÉR GETUR ÞÚ BÓKAÐ SKOÐUN Á EIGNINA **

Þórdís Björk Davíðsdóttur löggiltur fasteignasali og RE/MAX kynna:

Rofabær 43 – Árbæjarhverfi

Vel skipulögð og rúmgóð 3ja herbergja íbúð í góðu fjölbýli í barnvænu og vinsælu hverfi í Árbænum. Sameiginlegur inngangur er í húsið og fylgir eigninni sérmerkt bílastæði. Myndavéladyrasími er í íbúðinni en íbúðin þarfnast einhverrar endurnýjunar að innan en húsið hefur fengið gott viðhald og gott utanumhald er um húsfélög. Frábær eign sem fyrstu kaup og fyrir laghenta einstaklinga.

Samkvæmt skráningu HMS er birt flatarmál eignarinnar 82,0 fm sem skiptist í íbúðarrými 77,8 fm, geymsla 4,2 fm.

SMELLTU HÉR og þú færð SÖLUYFIRLIT sent til þín samstundis

Endurbætur á húsinu:

2017 var þak yfirfarið og járn endurnýjað ásamt þakrennum. Farið var í sprunguviðgerðir á Norður- og vesturhlið hússins. Skipt um glugga og gler á norður- og suðurhlið (fyrir utan svalaglugga og gler ásamt svalahurðum).

2019 Dyrasími endurnýjaður

2022 Leiktæki á sameiginlegri lóð endurnýjuð.

2023 og 2024 suðurhlið hússins var klædd og skipt um glugga og svalahurðir. Svalir endursteyptar, múrviðgerðir á steypta hlutanum inn í svölunum. Nýtt handrið á svalir.

SMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D

Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Þórdís Björk löggiltur fasteigna- og skipasali s: 862-1914 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið thordis@remax.is

Nánari lýsing eignar:

Forstofa með fatahengi, fataskápum og flísum á gólfi.

Eldhús er að mestu upprunalegt, bæði innréttingar og gólfefni.

Baðherbergi með baðkari, handlaug og salerni sem hefur verið endurnýjað. Flísar á gólfi og innrétting við hlið handlaugar.

Svefnherbergisgangur með fataskápum og parketi á gólfi.

Barnaherbergi í góðri stærð og er dúkur á gólfi.

Hjónaherbergi er rúmgott, dúkur á gólfi og opinn eldri fataskápur.

Stofa / borðstofa eru saman í björtu og rúmgóðu rými, með parketi á gólfi og útgengi á skjólgóðar suðursvalir.

Sameign er öll hin snyrtilegasta og þar er sérgeymsla íbúðar sem er 4,2 fm, sameiginlegt þvottahús þar sem hver íbúð er með sína vél, hjóla- og vagnageymsla.

Garðurinn er sérlega barnvænn með góðum leiktækjum. Lóðarfélag annast umhirðu og viðhald. Stutt er í leikskóla, skóla, þjónustu og gott útivistarsvæði.

Eignin þarfnast endurnýjunar að innan og býður upp á gott tækifæri fyrir kaupendur sem vilja setja sitt eigið handbragð á íbúðina.

Um er að ræða gott og vel viðhaldið fjölbýli. Þak var endurnýjað fyrir um 6 árum, svalir hafa verið endursteyptar og svalahurðir, gluggar og gler á suðurhlið hússins endurnýjuð.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

- Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.

- Ertu í söluhugleyðingum? Smelltu HÉR til að fá frítt verðmat.

Heimasíða RE/MAX

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

·      Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða) og 1,6% (ef lögaðilar)af heildarfasteignamati.

·      Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.

·      Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.

·      Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk

Kort af Rofabær 43

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36Mynd 37Mynd 38Mynd 39Mynd 40
Rofabær 43, 01-0201 | Húsasjá