Hraunbær 124
14-0202 · 110 Reykjavík



76 dagar á sölu
52.900.000 kr
805.175 kr/m²
Ástþór Reynir lgf. og Ragna Steinunn astmf. hjá RE/MAX kynna í einkasölu:
Bjarta og vel skipulagða 2ja herbergja íbúð á annarri hæð við Hraunbær 124. Eignin er alls 65,7 fm og hentar vel sem fyrstu kaup eða fyrir þá sem leita að þægilegri og hagkvæmri íbúð.
Eignin er laus við kaupsamning.
Nánari lýsing:
Komið er upp í íbúðina um snyrtilegan stigagang. Við inngang tekur á móti forstofa með fataskáp, flísalögð á gólfi. Frá forstofu er komið inn í bjarta og rúmgóða stofu með parketi á gólfi og góðu plássi fyrir setusvæði og borðkrók.
Eldhús er með parketi á gólfi og innréttingu með góðu skápaplássi og vinnuaðstöðu. Úr eldhúsi er gengið út á suðvestursvalir sem njóta góðrar sólar.
Svefnherbergið er rúmgott og með stórum fataskáp. Baðherbergið er flísalagt með baðkari og sturtuaðstöðu, ásamt snyrtilegri innréttingu með góðu skápaplássi.
Sameign:
Í sameign er sérgeymsla, þvottahús, hjóla- og vagnageymsla og snyrtilegur stigagangur. Eigninni fylgir einnig sérmerkt bílastæði.
Staðsetning:
Staðsetning er góð þar sem stutt er í verslun og þjónustu, skóla og sundlaug, auk þess sem í garðinum er sameiginlegt leiksvæði fyrir börn.
Allar nánari upplýsingar veita:
Ástþór Reynir löggiltur fasteignasali
📞 899-6753 | ✉️ arg@remax.is.
Ragna Steinunn Arnarsdóttir
📞 858-9494 | ✉️ ragna@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir




























