HÚSASJÁ

Hraunbær 110

07-0201 · 110 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
30 myndir

103 m²

Stærð

4

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1967

Byggingarár

20021 m²

Lóð

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



12 dagar á sölu

sell

68.900.000 kr

666.344 kr/m²

Fasteignasalan Garður

Falleg 4ra herbergja íbúð við Hraunbæ 110 í Reykjavík með útgengi út á vestur svalir. Samkvæmt HMS er íbúðarhlutinn 98,4 m2 auk 5 m2 geymslu. Samtals 103,4 m2. Rúmgott þvottahús innan íbúðar. Nýlega er búið að skipta um járn á þaki ásamt því að skipta um alla glugga á austurhlið. Merkt bílastæði á lóð.

Körfubolta og leikvöllur í sameiginlegum garði. Frábær staðsetning í  þessu vinsæla hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, eins og skóla, leikskóla, líkamsrækt, sundlaug, verslanir og náttúruparadísina Elliðaárdal.

Nánari upplýsingar má fá hjá fasteigansala. Halldór Freyr Sveinbjörnsson - 6932916 - halldor@fastgardur.is

Nánari lýsing.

Hol/anddyri með fataskáp með rennihurðum.

Stofa-borðstofa er mjög rúmgóð með stórum gluggum til vesturs með fallegu útsýni. Útgengt er á góðar vestursvalir frá stofu.

Eldhús með fallegri hvítri innréttingu, með góðu skápaplássi og fallegri viðar borðplötu, innbyggð uppþvottavél, háfur og bakarofn í vinnuhæð. Innst í eldhúsi er góður borðkrókur við glugga.

Þvottahúsið er inn af eldhúsi. Hillur og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Opnanlegur gluggi.

Svefnherbergisgangur þar sem er skrifborðsaðstaða,

Tvö rúmgóð barnaherbergi.

Hjónaherbergi með góðum fataskáp.

Flísalagt baðherbergi með góðum innréttingum og baðkari með sturtuaðstöðu.

Sérgeymsla í kjallara ásamt hjóla og vagnageymslu. Sérhilla er í hjólageymslu fyrir dekk.

Góð blokk sem hefur verið gert mikið fyrir eins og að skipta um járn og pappa á þaki ásamt því að skipt var um alla glugga á austurhlið (svefnherbergjum og baðherbergi).

Húsið er að stórum hluta klætt með Steni (austurhlið).

Lóðin austan megin við húsið er sérlega barnavæn og falleg. Þar er grasflöt, fallegur trjágróður, leiktæki fyrir börn og bæði spark og körfuboltavöllur.

Mjög góð staðsetning og það er stutt í alla þjónustu, svo sem verslanir, skóla, leikskóla, sundlaug ofl.

Um skoðunarskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.

2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.

3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.

5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

www.fastgardur.is |  Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður

Kort af Hraunbær 110

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð