HÚSASJÁ

Fiskakvísl 13

01-0002 · 110 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
24 myndir

67 m²

Stærð

1

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1983

Byggingarár

869 m²

Lóð

Svalir



9 dagar á sölu

sell

54.900.000 kr

825.564 kr/m²

Tinna Bryde löggiltur fasteignasali og Háborg fasteignasala kynna:

Fiskakvísl 13 – Björt og einstaklega notaleg jarðhæð með garði í grónu og vinsælu hverfi í Ártúnsholti

Eignin er hönnuð af Kjartani Sveinssyni og er björt, rúmgóð og hlý jarðhæðaríbúð með útgengi í gróinn garð – fullkomin fyrsta eign eða notalegt heimili fyrir þá sem vilja rólegt og fjölskylduvænt umhverfi.

Íbúðin er skráð tveggja herbergja en býður upp á möguleika á að skipta svefnherberginu aftur í tvö minni herbergi.

-  Frábær fyrstu kaup

-  Viðarverönd og fallegur garður

Nánari upplýsingar um eignina veitir Tinna Bryde löggiltur fasteignasali í síma 660-5532 eða tinna@haborg.is

Skipulag:

Komið er inn í anddyri og þaðan opnast rýmið inn í bjarta og rúmgóða stofu með opnu eldhúsi. Franskir og stórir gluggar í suður gefa fallega birtu inn í rýmið.

Árið 2023 var opnað út í garð með svalahurð og byggður sólpallur – sem skapar frábæra tengingu við útisvæðið.

Svefnherbergið er mjög rúmgott með fjórum gluggum sem snúa í suður og austur. Hægt er að skipta herberginu upp í tvö minni herbergi ef þörf er á.

Baðherbergið var endurnýjað árið 2021 með flísum á veggjum og gólfi, háglans innréttingu og rúmgóðum sturtubotni.

Garður & hverfi

Garðurinn er gróinn og vel hirtur. Á sumrin blómstra rósir, gullsópur, graslaukar og litríkir runnar sem skapa notalega stemningu. Umsjón garðsins er keypt af húsfélaginu.

Hverfið er einstaklega vinsælt og fjölskylduvænt – aðeins um 100 metra ganga í tvo leikskóla og grunnskóla. Stutt er í sundlaug, þjónustu og fallegar gönguleiðir.

Húsfélag:

Húsfélagsgjöld eru um 10.499 kr. á mánuði og félagið á uppsafnað fé.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Kort af Fiskakvísl 13

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24