HÚSASJÁ

Sílakvísl 6

01-0103 · 110 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
37 myndir

100 m²

Stærð

3

Herbergi

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1983

Byggingarár

1967 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir



11 dagar á sölu

sell

99.900.000 kr

996.012 kr/m²

Nýtt á skrá! Glæsilegt og mikið endurnýjað 4-5 herbergja raðhús á frábærum stað við Sílakvísl 6 í Reykjavík.

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir glæsilegt, vel skipulagt og mikið endurnýjað 100,3 fermetra 4-5 herbergja raðhús við Sílakvísl 6 í Reykjavík. Eignin er nokkuð stærri að grunnfleti en birtir fermetrar gefa til kynna þar sem efri hæð og rishæð er að hluta undir súð. Eignin hefur verið mikið endurnýjuð á síðastliðnum árum. Má þar nefna að árið 2024 var baðherbergi, gólfefni efri hæðar og Velux þakgluggar endurnýjaðir. Árið 2020 var öll aðalhæð hússins (neðri hæð) endurnýjuð, m.a. gólfefni, eldhús og eldhústæki, gestasalerni og gluggar í stofu. Einnig er búið að endurnýja stiga hússins og breyta skipulagi sem gera húsið allt mun bjartara en það áður var. Auk þess var rishæð (risherbergi) endurnýjað og nýtist sem fjórða svefnherbergi hússins.

Húsið lítur vel út að utan af sjónskoðun. Lóðin er falleg og frágengin. Hellulögð stétt fyrir framan hús og afgirt viðarverönd til suðurs í bakgarði. Tyrfð lóð tekur við þar sem verönd endar í bakgarði. Sérmerkt stæði er fyrir framan hús og rafhleðslustöð beint fyrir framan. Auk þess eru sameiginleg malbikuð gestastæði fyrir framan hús. Sameiginleg hitakompa með húsi við hliðiná. Nýtist sem hjólageymsla. Gengið inn í frá framlóð.

Um er að ræða eftirsótta staðsetningu í góðu fjölskylduhverfi í Ártúnsholti í Reykjavík þar sem stutt er í grunnskóla og leikskóla. Frábærar hjóla- og gönguleiðir í næsta nágrenni. Stutt er í helstu stofnæðar þar sem hverfið er afar vel staðsett innan höfuðborgarsvæðisins. Íbúðin er í lokuðum og rólegum botnlanga.

Nánari lýsing:

Neðri hæð.

Forstofa: Með harðparketi á gólfi og skápum.

Gestasalerni: Er endurnýjað, með flísum á gólfi, upphengdu salerni, innréttingu við vask og útloftun.

Eldhús: Er endurnýjað á afar fallegan máta með góðu skápa- og vinnusplássi. Harðparket á gólfi og falleg hvít eldhúsinnrétting. Stór innbyggður kæliskápur og stór innbyggður frystiskápur til hliðar. Innbyggð uppþvottavél, spansuðu helluborð og háfur fyrir ofan. Lýsing undir efri skápum og falleg kvöldlýsing/óbein lýsing undir eldhúsinnréttingu við sökkul. Gluggi til norðurs.

Stofa: Er rúmgóð og rúmar vel setustofu og borðstofu. Harðparket á gólfum og gluggar til suðurs inn í bakgarð hússins. Útgengi frá stofu í afgirtan bakgarð sem skiptist í viðar verönd og tyrfða flöt.

Efri hæð. Fallegur endurnýjaður stigi er á milli hæða sem gefur eigninni mikinn sjarma.

Hol: Með harðparketi á gólfi. Gengið upp í rishæð/risherbergi frá holi.

Hjónaherbergi: Er rúmgott, með harðparketi á gólfi, skápum og Velux gluggum til norðurs.

Svefnherbergi II: Með harðparketi á gólfi og Velux gluggum til suðurs.

Svefnherbergi III: Með harðparketi á gólfi og Velux glugga til suðurs.

Baðherbergi: Hefur verið endurnýjað á virkilega fallegan máta. Flísalögð sturta með glerþili og vönduðum innbyggðum Grohe sturtutækjum. Falleg innrétting við vask og upphengt salerni. Geymsluskápur undir súð, handklæðaofn og góð aðstaða fyrir þvottavél með vinnuborði fyrir ofan. Gluggi til norðurs og útloftun.

Rishæð/risherbergi: Fallegur nýlegur stigi liggur frá holi efri hæðar upp í risherbergi. Flotað gólf og tveir Velux þakgluggar. Nýtist í dag sem fjórða svefnherbergið.

Nánari upplýsingar:

Heimir Hallgrímsson, lögg. fasteignasali / heimir@fastlind.is / 849-0672

Kort af Sílakvísl 6

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36Mynd 37