HÚSASJÁ

Hverafold 25

01-0101 · 112 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
26 myndir

61 m²

Stærð

1

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1987

Byggingarár

2512 m²

Lóð

Garður

Geymsla



50 dagar á sölu

sell

57.900.000 kr

869.369 kr/m²

Jason Kristinn Ólafsson sími 775-1515, löggiltur fasteignasali, netfang: jason@betristofan.is og Betri Stofan fasteignasala kynna:Til sölu er mjög falleg og mikið endurnýjuð íbúð á 1. hæð, gengið inní stigagang og þaðan hálf hæð upp. Íbúðin sjálf er skráð: 60,6 fm og er í litlu fjölbýlishúsi við Hverafold 25 í Reykjavík. Íbúðin er 66,6 fm að geymslu meðtalinni sem er ekki skráð skv. FMR og er geymslan innst í geymslugangi með vatnstengi fyrir þvottavél. Íbúðin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og stofu/eldhús í opnu rými. Úr stofunni er útgengt á svalir með fallegu útsýni. Eldhús hefur verið fært í stofu og því eru samþykktar teikningar ekki réttar. Upphaflega var eldhúsið þar sem núna er minna svefnherbergið.

Myndband

https://vimeo.com/fasteignamyndbond/hverafold25

Íbúðin er laus við kaupsamning

Nánari lýsing

Forstofa: flísar á gólfi og stór fataskápur.  Skápahurðir nýsprautaðar.

Svefnherbergi: stór fataskápur með nýsprautuðum skápahurðum og nýtt parket á gólfi.

Barnaherbergi: rúmgott með nýju parketi.

Baðherbergi: flísar á gólfi, baðkar með sturtuaðstöðu og gert ráð fyrir þvottavél. Nýr skápur, ný handlaug, blöndunartæki og baðinnrétting.

Eldhús: snyrtileg innrétting frá 2021 og gott skápapláss þar sem m.a. er gert ráð fyrir uppþvottavél.

Stofa/borðstofa/eldhús: í opnu og björtu rými með útgengi á svalir.

Sérgeymsla:  rúmgóð 6 fm sérgeymsla í kjallara fylgir íbúðinni með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.  Geymslan var máluð í janúar 2026.  Snúrur eru í geymslunni.  Í kjallara er einnig sameiginleg geymsla.

Viðhald og endurbætur: Íbúðin öll máluð í desember 2025, Nýtt parket lagt í desember 2025, Fataskápar sprautulakkaðir í desember 2025, Nýr gluggi í barnaherbergi og forstofu 2024, Nýjar útihurðir 2024

Eldhúsinnrétting endurnýjuð 2021.

Á næstunni þarf að skipta um þakjárn en ekki er búið að ákveða neitt í þeim efnum enn.  Þess má geta að þessi íbúð ber eingöngu 5% af heildarkostnaði þakskipta. Skipta á um rúðu (móða á milli glerja) í stærra svefnherberginu en umræður eru um að það verði gert á vegum húsfélagsins á næstunni.

Íbúðin er 3ja herbergja í dag en er skráð sem 2ja herbergja samkvæmt teikningum og eignaskiptasamningi en eldhús var fært í stofuna og barnaherbergi útbúið þar sem eldhúsið var áður.

Allar nánari upplýsingar veitir Jason Kristinn Ólafsson,  löggiltur fasteignasali. Netfang: jason@betristofan.is - s: 775-1515

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:

1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Kort af Hverafold 25

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð