HÚSASJÁ

Logafold 154

01-0101 · 112 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
69 myndir

286 m²

Stærð

6

Herbergi

6

Svefnherbergi

3

Baðherbergi

1984

Byggingarár

704 m²

Lóð

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur

Auka íbúð



164 dagar á sölu

sell

174.900.000 kr

611.966 kr/m²

Einstaklega bjart og mjög rúmgott  einbýlishús á tveimur hæðum með nýlegri auka íbúð og sólpalli með heitum potti í friðsælum botnlanga við Logafold í Reykjavík. Bílskúr hússins var breytt í 2ja herb. íbúð. Neðri hæð hússins hefur nýlega verið endurnýjuð.  Fimm mjög rúmgóð svefnherbergi eru í húsinu. Tvenn baðherbergi eru í húsinu auk baðherbergis í aukaíbúð. Tvennar svalir. Eignin getur verið laus fljótlega.

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 285,8fm. á tveimur hæðum og þar af aukaíbúð og geymsla 63,6fm.

Nánari lýsing :

Anddyri rúmgott með góðu skápaplássi og nýlegar flísar á gólfi.

Baðherbergi nýlega uppgert með innangengri sturtu, innréttingu, upphengt salerni og flísalagt í hólf og gólf.

Eldhús nýlegar uppgert með fallegri innréttingu, innbyggð uppþvottavél, stór eldavél með tvöföldum ofn og helluborði, gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp í innréttingunni, gott gólfpláss fyrir stórt eldhúsborð, flísar á gólfi og gólfhiti. Útgengt er úr eldhúsinu út á bílaplan hússins.

Stofa mjög rúmgóð og björt með fallegum frönskum gluggum og parketi á gólfi. Útgengt er út í garð hússins úr stofunni.

Sólskáli er við stofu og eldhús með flísum á gólfi og gólfhiti. Útgengt er úr sólskálanum út á suðvestur pall þar sem er heitur pottur og markísa.

Stigi liggur upp á efri hæð hússins.

Efri hæðin er mjög rúmgóð þar sem hún nær yfir íbúðina og geymsluna á neðri hæðinni og einnig með aukinni lofthæð.

Hjónaherbergi rúmgott með góðu skápaplássi, auka lofthæð  og parket á gólfi. Útgengt er út á svalir úr herberginu.

Svefnherbergi 2 rúmgott með parketi á gólfi. Útgengt er út á salir úr herberginu.

Svefnherbergi 3 rúmgott með parketi á gólfi.

Svefnherbergi 4 rúmgottt með parketi á gólfi.

Svefnherbergi 5 rúmgott með parketi á gólfi.

Baðherbergi með baðkari og sturtuklefa, gluggi, góð innrétting, handklæðaofn og flíslagt í hólf og gólf.

Þvottahús er á hæðinni. Auðvelt er að stækka þvottahúsið.

Svefnherbergisgangur rúmgóður með parketi á gólfi.

Hol þar sem í dag er skrifstofuaðstaða með parketi á gólfi.

Aukaíbúð hefur nýlegar verið útbúin þar sem áður var tvöfaldur bílskúr, gólfhiti er í allri íbúðinni.

Stofa rúmgóð og björt með gólfsíðum glugga og parket á gólfi.

Eldhús með góðri innréttingu, innbyggð uppþvottavél, ofn, helluborð og parket á gólfi.

Herbergi mjög rúmgott með skápaplássi og parket á gólfi.

Baðherbergi er inn af svefnherbergi, innangeng sturta, gluggi, innrétting, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, handklæðaofn og flísalagt í hólf og gólf.

Geymsla hússins er með sérinngangi á framhlið hússins.

Bílaplan fyrir framan húsið er hellulagt.

Skjólgóður sólpallur með heitum potti og markísu er á suðurhlið hússins.

Garður í góðri rækt.

Hér er um að ræða vel skipulagða eign í grónu og skjólgóðum stað í fjölskylduvænu hverfi þar sem stutt er í leikskóla, grunnskóla, sundlaug og ýmsar tómstundir. Stutt er í göngu- og hjólastíga.

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.isForsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Kort af Logafold 154

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu