HÚSASJÁ

Hverafold 43

01-0101 · 112 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
50 myndir

137 m²

Stærð

4

Herbergi

4

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1988

Byggingarár

851 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Geymsla

Þvottahús



29 dagar á sölu

sell

129.900.000 kr

946.793 kr/m²

NÁNARI UPPLÝSINGAR FÆRÐU HJÁ GUÐNÝJU ÞORSTEINS Í SÍMA 7715211 EÐA GUDNYTH@REMAX.IS

SMELLTU HÉR OG SJÁÐU EIGNINA Í 3VÍDD (ekki er þörf á sérstöku forriti til þess)

RE/MAX og GUÐNÝ ÞORSTEINS Löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: 5 herbergja neðri sér hæð með 38fm óskráðum en fullnýttum fermetrum. Íbúðin er skráð 137,2fm en er samtals 167,2fm með óskráðum fermetrum. Friðsælt og sérlega fallegt útsýni er yfir voginn, mikil náttúra og fuglasöngur allt árið um kring.

Eignin samanstendur af: Forstofu, 4 svefnherbergjum, sjónvarpsholi, stofu, eldhúsi, þvottahúsi, geymslu ásamt sólpalli. 2 bíla stæði tilheyra eigninni með einni rafhleðslu.

Lýsing eignar:

Forstofa: Er rúmgóð með skáp, flísar á gólfi.

Þvottahús: Er inn af forstofu með innréttingu, snúrum í lofti og rennihurð fyrir, flísar á gólfi.

Geymsla: Er 10,8fm að stærð, inn af forstofu.

Sjónvarpshol: Er í miðju íbúðar með hljóðeinangrunar panel á vegg, harðparket á gólfi.

Eldhús: Er með góðri vinnu aðstöðu ásamt skúffu- og skápaplássi, tengi fyrir uppþvottavél og borðkrókur. Flísar á gólfi.

Sólpallur: Er 78,3fm að stærð, sérlega skjólsæll með harðviði á borðum.

Garður: Er sameiginlegur, fallega gróin með stórum trjám þar sem fuglarnir njóta hins besta.

Stofa: Er björt og rúmgóð með stórum gluggum ásamt borðstofu. Harðparket á gólfi.

Herbergi I: Er 8,2fm að stærð með einföldum fataskáp, harðparket á gólfi.

Herbergi II: Er 9,9fm að stærð með tvöföldum fataskáp með skúffum í, harðparket á gólfi.

Herbergi III: Er 11,9 að stærð með þreföldum fataskáp, harðparket á gólfi.

Herbergi IIII: Er 10,9 að stærð með stórum fataskáp með rennihurðum fyrir ásamt útgangi út á sólpall, harðparket á gólfi.

Baðherbergi: Er  7,5 að stærð, flísalagt í hólf og gólf með baðkari, þreplausri sturtu, stórum spegli ásamt góðu hirslu plássi.

Viðhald:

2018 - Gólfefni endurnýjuð

2018 - Gler endurnýjað í hjónaherbergi

2020 - Járn á þaki ásamt rennum endurnýjað

2022 - Þakkantur á norðurhlið endurnýjaður

2023 - Húsið múrviðgert og málað

2024 - Hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl, þriggja fasa sett upp

2024 - Svalahurð í hjónaherbergi endurnýjuð

2024 - Gler í 2 svefnherbergjum endurnýjað

Lóðin er virkilega falleg með hellulagðri innkeyrslu, stétt fyrir framan íbúð auk fallegs gróðurs. Baklóð hússins er mjög skjólsæl og snýr suðurs, með ?fm sólpalli. Garðurinn er draumi líkast með fallegum trjágróðri. Staðsetning eignarinnar er sérlega góð í neðstu röð Hverafoldar alveg niðri við sjóinn og frá eigninni nýtur mjög fallegs sjávarútsýnis.  Stutt er í skóla, leikskóla, verslanir og aðra þjónustu.

Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Guðný Þorsteins löggiltur fasteigna- og skipasali s: 771-5211 eða á netfangið gudnyth@remax.is.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Re/Max því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.600 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, 69.900 kr. m.vsk.

Kort af Hverafold 43

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36Mynd 37Mynd 38Mynd 39Mynd 40Mynd 41Mynd 42Mynd 43Mynd 44Mynd 45Mynd 46Mynd 47Mynd 48Mynd 49Mynd 50