HÚSASJÁ

Frostafold 26

03-0101 · 112 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
35 myndir

71 m²

Stærð

1

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1986

Byggingarár

3345 m²

Lóð

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



8 dagar á sölu

sell

59.900.000 kr

847.242 kr/m²

Sigrún Gréta hjá RE/MAX kynnir 2ja herb. íbúð með sér afgirtri verönd að Frostafold 26 í Reykjavík. Mikið endurnýjuð og snyrtileg íbúð með sér afnotarétti í lágreistu fjölbýli. Húsið er í rólegri og fjölskylduvænni götu. Opið stórt gróið svæði er aftan við hús og stutt er í leik- og grunnskóla, falleg útivistarsvæði og helstu þjónustu og verslanir. Allt í göngufæri.

Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / sigrun@remax.is

Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu. Heildareignin er skráð hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun 70,7 m2.

*VINSAMLEGA BÓKIÐ TÍMA Í OPIÐ HÚS FIMMTUD. 5. MARS MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

Söluyfirlit má nálgast hér

Nánari lýsing:

Forstofa er inn af flísalögðu gólfi í sameign. Ekki þarf að fara um neinar tröppur. Innan íbúðar er tvöfaldur fataskápur innfelldur inn í vegg. Eikarparket er á forstofu og flæðir það um flest rými íbúðar, án þröskulda.

Stofa er björt og rúmgóð með útgengi út á afgirta viðarverönd til suðvesturs.

Eldhús var gert upp 2022. Grá "U" laga innrétting frá Ikea. Efri skápar með glerhurðum. Tæki voru einnig endurnýjuð, sjálfhreinsandi bakaraofn, spanhelluborð, blöndunartæki og innbyggð uppþvottavél. Á gólfi er parket. Gluggi snýr út í opið grænt svæði til norðurs.

Þvottahús er sér innan íbúðar. Stæði og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Borðplata og hillur. Nýlegar svartar gólfflísar.

Herbergi er rúmgott með nýlegum hvítum fataskáp með innbyggðri lýsingu (ekki sá sem er á myndinni). Gluggi snýr til norðurs og langt er í næstu hús.

Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Nýleg (2024) hvít innrétting, ílangur veggfestur skápur og speglaskápur með borði. Einnig er vaskur á ljósri borðplötu nýr sem og blöndunartækin og selernið. Hvítur handklæðaofn og walk-in sturtuklefi með gleri.

Geymsla er sér í sameign á sömu hæð og íbúð.

Hjóla- og vagnageymsla er í sameign.

Garður er gróinn umhverfis hús.

Bílastæði eru í sameign úti á lóð.

-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.

-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

-Sigrún Gréta löggiltur fasteignasali í síma 864 0061 eða sigrun@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila. Reiknast af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.

3. Lántökugjald eftir gjaldskrá lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-

Kort af Frostafold 26

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð