HÚSASJÁ

Frostafold 2

01-0301 · 112 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
40 myndir

143 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1987

Byggingarár

2387 m²

Lóð

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



253 dagar á sölu

sell

96.500.000 kr

676.244 kr/m²

101 Reykjavík fasteignasala kynnir í einkasölu: Glæsileg, björt og rúmgóð 142,7 ferm 4-5 herb. Íbúð með frábæru útsýni til suðurs og vesturs, yfir Reykjavík, Keili og Snæfellsjökul.

Gengið er inn í forstofu með góðum fataskápum, til vinstri er svefnherbergisálma með þremur rúmgóðum herbergjum og baðherbergi. Til hægri við innganginn er rúmgott sjónvarpshol sem liggur að stofu, eldhúsi og þvottahúsi.  Útgengt er út á stórar suðvestur útsýnissvalir frá borðstofu. Tvennar svalir eru í íbúðinni frá hjónaherbergi og borðstofu.

Forstofa/hol: Góðir fataskápar á vinstri hönd og rúmgott sjónvarpshol með parketi á gólfi til hægri.

Eldhús: Falleg innrétting með góðu skápa- og borðplássi, keramikhelluborð, flísar á gólfi og á vegg milli efri og neðri skápa.

Þvottahús: Er inn af eldhúsi ásamt nettu geymslu og skápaplássi. Gólf flísalagt að hluta eins og eldhúsgólf en að hluta til málað.

Stofur: Stofan og borðstofan eru sameiginlegar, rúmgóðar og með parketi á gólfi. Útgengt út á suðvestur útsýnissvalir.

Svefnherbergi: Herbergin þrjú eru öll parketlögð og rúmgóð. Fataskápar eru í tveimur herbergjunum og útgengt út á svalir úr hjónaherberginu.

Baðherbergi: Flísalagt, sturta, handklæðaofn og innrétting undir vaski. Allt endurnýjað.

Geymsla: Sér geymsla fylgir í kjallara.

Í snyrtilegri sameign er sameiginleg vagna- og hjólageymsla.

Sameiginlegur garður.

Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum tíðina.

2020 Hluti húss málaður, hvíti hlutinn.

2021 Þak málað.

2023 Baðherbergi endurnýjað.

2025 Gluggar á húsi málaðir.

Um er að ræða einstaklega fjölskylduvæna útsýnisíbúð á frábærum stað í Grafarvogi.

Sjón er sögu ríkari.

LEIK- OG GRUNNSKÓLI ER Í NÆSTA NÁGRENNI,  AUK ÞESS ER STUTT Í ÍÞRÓTTASVÆÐI OG SUNDLAUG GRAFARVOGS.

Nánari upplýsingar veitir Kristín Sigurey Sigurðardóttir , í síma 820-8101, tölvupóstur kristin@101.is.

Allar upplýsingar veita: Björg Kristín Sigþórsdóttir s.771-5501 bjorgkristin@101.is.

Bókið skoðun á bjorgkristin@101.is eða í síma 771-5501.

Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af fasteignamati (eða 0,4% við fyrstu-kaup kaupanda) eða 1.6% fyrir lögaðila.

1. Þinglýsingagjald af hverju skjali kr. 2.700,-

2. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt um 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 89.900,- með vsk.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. 101 Reykjavík Fasteignasala hvetur væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni en getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem eru ekki aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp, þak osfrv.

Kort af Frostafold 2

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36Mynd 37Mynd 38Mynd 39Mynd 40