Jöklafold 4
01-0201 · 112 Reykjavík



8 dagar á sölu
129.900.000 kr
732.244 kr/m²
LANDMARK fasteignamiðlun ehf. og Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali (s: 690 3111 / andri@landmark.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu:
Glæsilega 177,4 fm efri sérhæð með innbyggðum bílskúr í góðu tvíbýlishúsi við Jöklafold 4 í Grafarvoginum. Gróinn og fallegur garður - stórar útsýnissvalir - mjög góð lofthæð - fjögur svefnherbergi. Virkilega góð staðsetning þar sem stutt er í skóla, leikskóla og aðra þjónustu í hverfinu. Birt stærð skv. HMS: Íbúðin er 148,9 fm og bílskúrinn 28,5 fm eða samtals: 177,4 fm. Ekkert formlegt húsfélag er starfrækt í húsinu.
Nánari lýsing eignar: Komið er inn í forstofu með stórum fataskáp. Á hægri hönd við inngang er innangengt í mjög snyrilegan bílskúrinn. Á vinstri hönd við inngang er forstofuherbergi með fataskáp og geymslulofti. Frá forstofu tekur við opið rými sem skiptist í sjónvarpsrými, stofu og borðstofu með mikilli lofthæð sem gerir rýmið mjög bjart. Frá stofu er unnt að ganga út á bogadregnar svalir með fallegu útsýni. Eldhús með hvítri innréttingu, góðu skápaplássi, gluggi. Innaf eldhúsinu er þvottahús með hvítri innréttingu og frá þvottahúsið er útgengt á hellulagða verönd með pallefni og heitum potti. Innaf stofunni er svefnherbergi (var áður borðstofa skv teikningnum). Tvö svefnherbergi til viðbótar og eru þau bæði með nýlegum ofni, rúmgóður fataskápur í hjónaherbergi. Baðherbergi með baðkari og sér sturtuklefa, neðri skápur og gluggi. Bílskúrinn er 28,5 fm og er hann með heitu og köldu vatni og 3ja fasa rafmagni. Fyrir framan bílskúr er hiti í stétt. Gólfefni: parket og flísar á gólfum fyrir utan forstofu og baðherbergi en þar er vínyl gólfefni.
RÚMGÓÐ OG VEL SKIPULÖGÐ ÍBÚÐ Á EFTIRSÓTTUM STAÐ Í GRAFARVOGINUM ÞAR SEM STUTT ER SKÓLA OG ALLA HELSTU ÞJÓNUSTU.
Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma 690 3111 eða andri@landmark.is
Umsagnir viðskiptavina HÉR
Fylgdu mér á Facebook
Fylgdu mér á Instagram
Pantaðu FRÍTT söluverðmat á www.frittsoluverdmat.is
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna







































