HÚSASJÁ

Frostafold 23

01-0303 · 112 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
25 myndir

113 m²

Stærð

3

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1988

Byggingarár

960 m²

Lóð

Garður

Svalir

Bílskúr

Þvottahús



80 dagar á sölu

sell

79.900.000 kr

706.454 kr/m²

Fasteignasalan Garður

Vorum að fá í sölu virkilega skemmtilega 113,1 fm 3ja herbergja útsýnis íbúð á tveimur hæðum ásamt bílskúr við Frostafold 23 í Reykjavík.

Eignin skiptist í eldhús, stofu og þvottahús á neðri hæð og á efri hæð er sjónvarpshol(möguleiki að breyta í herbergi), tvö svefnherbergi, baðherbergi og hol. Rúmgóðu bílskúr á 1.hæð. Sérgeymsla í sameign.  Eignin hefur verið mikið endurnýjuð að innnan.

Eignin er skráð skv. HMS 113,1 m2, neðri hæð: 33,8 m2, risloft: 44,1 m2 og bílskúr 25,3 m2

Neðri hæð:

Anddyri: Komið er inn í anddyri með fataskáp sem er opið inn að stofu.

Stofa: Björt og góð stofa með útgengt á mjög stórar svalir sem snúa til suðurs með glæsilegu útsýni.

Eldhús: Eldhúsið hefur nýlega verið endurnýjað með fallegri innréttingu, góðum eldunartækjum. Eldhúsið er opið inn að stofu.

Þvottahús: Inn af anddyri er þvottahús.

Hringstigi liggur upp á efri hæð.

Efri hæð:

Komið er upp í opið rými.

Sjónvarpshol: Rúmgott sjónvarpsrými er í opnu rými frá holi. Möguleiki er að útbúa þriðja svefnherbergið úr sjónvarpsholinu.

Hjónaherbergi: Að hluta undir risi. góður gluggi og innskot fyrir fataskáp. Parket á gólfi.

Barnaherbergi:  Að hluta undir risi. Parket á gólfi.

Baðherbergi:  Fallegt nýlega endunýjað baðherbergi með hvítum flísum, fallegri innréttingu, walk in sturtu með glerskilrúmi. góð lofthæð er inn á baðherbergi.

Sameign: Sérgeymsla(9,9 fm) er í sameign ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.

Bílskúr: Mjög rúmgóður 25,3 fm bílskúr. Skúrinn er staðsettur næst inngangi og er með gott bílastæði beint fyrir framan hann.

Um er að ræða virkilega fallega og mikið endurnýjaða eign sem vert er að skoða. Leikskólinn Sunnufold er handan við húsið og göngufæri er í Foldaskóla. Einnig er göngufæri í verslanir og þjónustu á Foldatorgi og eru undirgöng undir Fjallkonuveg. Stutt í Grafarvogslaug, kirkju o.fl.

Um skoðunarskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.

2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.

3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.

5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

www.fastgardur.is |  Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður

Kort af Frostafold 23

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25